Stend enn með Gylfa

„Muni ráðherrann ekki segja af sér sjáum við ekki annan kost í stöðunni en að bera fram vantrauststillögu á hendur ráðherranum um leið og þing kemur saman í september."

Þar höfum við það. Þingmenn Hreyfingarinnar eru gengnir til liðs við þá sem ástunda þann ljóta leik að reyna að persónugera þessi gengislán í Gylfa Magnússyni.

Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir eru langflottustu og vinsælustu ráðherrar þessarar ríkisstjórnar. Nú skal reynt til þrautar af hægri öflunum í þessu landi að níða mannorðið af Gylfa með því að saka hann um lygar.

Ragna Árnadóttir verður væntanlega næsta fórnarlambið í þessu ljóta einelti.

Hafið hugfast að þegar þessi umdeildu lán voru veitt var Gylfi Magnússon að kenna sín fræði uppi í Háskóla og kom á engan hátt nærri stjórnsýslunni.

Hann var ekki á þeirri vakt sem átti að sjá að lánin voru hugsanlega ólögleg. Reyndar datt engum það í hug á þeim tíma og lántakendur voru himinlifandi með gengislánin sín þar til spilaborgin hrundi.

Hverjir voru á þeirri vakt? Man það einhver hér inni eða vill muna?

Ákaflega auðvelt að vera yfir sig vitur eftirá. Þannig eru stjórnmál nútímans hér á landi.

Eftirástjórnmál með enga framtíðarsýn.

Stjórnmál sem að mestu snúast um að sparka í einstaklinga. Það er ömurlegt að verða vitni að þessu.

Ef hægri menn segja Gylfa ljúga, veit ég að hann er stálheiðarlegur og segir satt.

Hvernig getur nokkrum heilvita manni dottið í hug að það verði þingi og þjóð til framdráttar að Gylfi Magnússon hverfi úr embætti?


mbl.is Skora á Gylfa að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú nú er Hreyfingin orðin að hægrimönnum, hvenær gerðist það?

sr (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 13:33

2 Smámynd: Björn Birgisson

Í gær kannski?  Smá ónákvæmni í orðavali hjá mér, en skilst þó líklega ágætlega. Hvar vilt þú staðsetja Hreyfinguna í pólitíkinni?

Björn Birgisson, 13.8.2010 kl. 13:39

3 identicon

Ekki í fjórfokkinu. Lengra nær metnaður minn ekki þegar íslensk stjórnmál eru annars vegar.

sr (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 14:14

4 identicon

endilega skaltu standa með Gylfa-  meina hvað hefur hann annað gert annað en að svitna í viðtali.  Fólk sem lýgur svitnar sjaldan eins og hann nema það sé með ofvirka kirtla :)  meiri vinstri maðurinn sem þú ert það er alveg sama hvaða rugl þeir bjóða upp á þá er það gott og vel.  Annað en hægri menn,  jáhá ert þú einn af þeim sem ert á því að þjóðverjar ættu að vera lokaðir inn í búrum vegna þess að WW2 var víst þeim að kenna? 

prakkari (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 22:02

5 Smámynd: Björn Birgisson

prakkari segir: "Annað en hægri menn,  jáhá ert þú einn af þeim sem ert á því að þjóðverjar ættu að vera lokaðir inni í búrum vegna þess að WW2 var víst þeim að kenna?"

Nú held ég að prakkari þurfi á snyrtinguna af augljósum ástæðum. Vatn, pappír og hreinar buxur er allt sem þarf!

Björn Birgisson, 13.8.2010 kl. 22:14

6 identicon

Reyndar ekki en takk fyrir að láta mig athuga.  Þú ert bara greinilega kommi og kommum er ekki vit komandi í og þó að íslandi sé stjórnað af kommum í dag sem er alltaf eins og gömlu soveitríkin og er í raun rússland í dag þá er spurning um að þú flytir þangað

prakkari (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 22:22

7 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sælir fjórflokkinn burt og nýtt afl fyrir fólkið og lýðræðið því það sem er að gerast á þingi er ekki í neinum tengslum við raunveruleikan!

Sigurður Haraldsson, 13.8.2010 kl. 22:35

8 Smámynd: Björn Birgisson

Sigurður, ertu kominn í framboð, eða eiga bara einhverjir aðrir að fara í framboð og bera uppi skoðanir þínar?

Björn Birgisson, 13.8.2010 kl. 22:43

9 identicon

Nú er mjög til siðs að gefa skít í allt og alla sem reyna að taka til eftir hrunið mikla. Sérstaklega eru framsóknarmenn og konur framarlega í þeim flokki. Var það ekki Valgerður framsókarráðherra sem lögleiddi erlendu lánin? Jú ég hélt það. Tækifærissinnar er ef til vill eitthvað sem á við hér. Gullfiskaminni er annað sem á einnig við, drasl segi ég, drasl og hyski. 

Skondinn Spéfugl (IP-tala skráð) 13.8.2010 kl. 23:19

10 Smámynd: Björn Birgisson

Skondinn spéfugl, ég sé að þú heldur þinni línu fullkomlega!

Björn Birgisson, 14.8.2010 kl. 13:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband