Stóriðjan svamlar í hafinu

"Farið var yfir undirbúning stórframkvæmda í vegagerð á fundi forsvarsmanna lífeyrissjóða, samgönguráðuneytis, fjármálaráðuneytis og Vegagerðarinnar í dag. Um er að ræða framkvæmdir fyrir 38 milljarða á næstu 5 árum."

Hér er gott mál á ferðinni. Tvennt er nú mikilvægara en annað. Að skapa fleiri störf og að afla meiri gjaldeyris.

Næsta stóriðja sem við eigum að ráðast í er svo borðliggjandi að undrun vekur hve lítið er rætt um hana. Hún kallar ekki á erlend lán á ruslflokksvöxtum og kjörum. Hún kallar ekki á flókið umhverfismat og tímafrekar deilur um það. Hún kallar nánast á eitt pennastrik í tilteknu ráðuneyti.

Næsta stóriðja okkar er þegar fyrir hendi ef við viljum og þorum.

Hún er fiskurinn í sjónum allt í kring um landið.

Mér er algjörlega óskiljanlegt að kvótinn í bolfiski skuli ekki hafa verið aukinn um 50-60 þúsund tonn á nýhöfnu kvótaári.

Milljarðar og aftur milljarðar svamla um innan 200 mílnanna okkar og ráðamenn bora bara í nefið að hætti Hafró!

Aukum kvótann duglega, ekki seinna en á morgun!


mbl.is Framkvæmt fyrir 38 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Koma stoppstefnuflokknum úr ríkisstjórn sem virðist hafa það að meginmarkmiði sínu að bregða fæti fyrir atvinnuuppbyggingu í landinu - við getum ekki skattað okkur úr þessu - við verðum að vaxa - það mun ekki geras meðan vg er í ríkisstjórn

Óðinn Þórisson, 7.9.2010 kl. 20:29

2 Smámynd: Björn Birgisson

Óðinn, viltu að ég verði sammála innleggi þínu?

Björn Birgisson, 7.9.2010 kl. 20:34

3 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Frjálsar handfæraveiðar var kosningaloforð samfylkingarinnar, lífeyrissjóðirnir ættu

frekar að lána fólkinu fé til bátakaupa.

Aðalsteinn Agnarsson, 7.9.2010 kl. 20:41

4 Smámynd: Björn Birgisson

Aðalsteinn, bankarnir eru líka yfirfullir af peningum.

Björn Birgisson, 7.9.2010 kl. 21:01

5 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Gott hjá þér Björn, þú reynir að opna augun á ríkisstjórninni.

Aðalsteinn Agnarsson, 7.9.2010 kl. 21:30

6 Smámynd: Björn Birgisson

Aðalsteinn minn, orð mín hér hafa sömu vigt og loftið í 17. júni blöðrum barnanna okkar og barnabarna. En mér finnst gaman að tjá mig, þótt stundum skelli mótbárur á stafninn í logninu.

Björn Birgisson, 7.9.2010 kl. 22:13

7 Smámynd: Óðinn Þórisson

Það getur ekki skipt miklu máli hvort þú sért sammála mér eða ekki - væntanlega ert þú það ekki -

Óðinn Þórisson, 8.9.2010 kl. 07:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband