Skattlagt til að mismuna þegnunum

Sótti ekki um lánaleiðréttingu á kostnað skattgreiðenda í þessu landi.
Vegna þeirrar einföldu staðreyndar að ég skulda ekkert núorðið.
Vegna þeirrar einföldu staðreyndar að minn forsendubrestur lá algjörlega óbættur hjá garði á árunum eftir 1980 í óðaverðbólgunni sem þá var.
Sá forsendubrestur var miklu alvarlegri og dýpri en 2008 hrunið!
Fengu skuldarar þá einhverja hjálp?
Nei, enga.
Borguðu og ...bitu bara á jaxlinn!
Er mjög hugsi yfir væntanlegum "leiðréttingum"!
Er algjörlega fastur á þeirri skoðun að þær standist ekki jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
Hvernig í ósköpunun geta stjórnvöld "leiðrétt" lán sumra þegna sinna, en alls ekki annarra?
Leiðrétt í raun lán þeirra sem best hafa það í þjóðfélaginu!
Hvað með námslánin?
Skerða ekki stökkbreytt námslánin möguleika okkar unga fólks til að komast yfir það að eignast þak yfir höfuðið?
Hvers konar bull er þetta eiginlega?
Trúi Framsókn til alls. Hún gerir allt fyrir fylgið. Siðferði þess flokks er vel neðan við almennt viðurkennt siðferði í landinu.
En að Sjálfstæðisflokkurinn taki þátt í svona bulli og geri svona upp á milli fólks er mér óskiljanlegt.
Hélt að sá flokkur stæði ekki fyrir því að skattleggja til að mismuna þegnunum.
Sú mun vera raunin.
Það blasir við.
Framsókn er með Sjallana í vasanum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Voru það ekki þessir sömu flokkar og nú sitja og forsætisráðherrann Steingrímur Herrmannsson sem afnámu vísitölubindingu launa á 9. áratugnum, en héldu vísitölunni á lánunum óskertri ? Þegar afleiðingin fyrir heimilin urðu ljós síðar sagði Steingrímur aðeins "það ber að harma það". Meira fékk fólk þá ekki upp í skuldirnar sem höfðu vaxið því yfir höfuð. Ég keypti verkamannabústað 1982, tók við láni upp á 1400 þúsund. Einum Steingrími forsætisráðherra seinna var lánið komið hátt á 7undu milljón, en launin sátu eftir.

Allt fyrir fjármagnið var mottóið þá - og er enn. 

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.9.2014 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband