30.6.2010 | 16:49
Strikamerktur borgarfulltrúi
Eitthvað á fjórða þúsund kjósendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík strikuðu yfir nafn Gísla Marteins Baldurssonar í kosningunum í lok maí. Ef samræmi væri í kosningareglum til Alþingis og sveitastjórna hefði Gísli fallið niður um sæti og ekki náð sæti í borgarstjórn Reykjavíkur.
Þetta er með miklum ólíkindum. Ekki veit ég hvað allur þessi fjöldi hefur á móti Gísla Marteini, en einhverjar grunsemdir vakna þó.
Í ljósi þessara staðreynda má segja að Gísli Marteinn hafi svindlað sér bakdyramegin inn í borgarstjórn Reykjavíkur.
Sé þar hálfgerð boðflenna.
Ekki vildi ég vera í hans sporum.
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gísli ætlar að gefa þessu gaum, því skal hann hér eftir Gisli gaumur heita.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 30.6.2010 kl. 16:56
Hverfi hann í algleimið sem allra fyrst. Hefur gert sig endalaust að apaketti í fikti sínu við stjórnmál sem hann skilur ekkert í. Hvítir máfar fari í friði um tjarnir lands.
K.H.S., 30.6.2010 kl. 18:30
Kári H. Sveinbjörnsson, skáldlegt: "Hvítir máfar fari í friði um tjarnir lands." Hvenær kemur ljóðabókin?
Björn Birgisson, 30.6.2010 kl. 23:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.