7.7.2010 | 10:32
Meiri gjaldeyri úr hafinu?
Sjávarafurðir vógu þungt í útflutningi í júnímánuði. Útflutningur afurða iðnaðarins, einkum stóriðjunnar, er sem fyrr fyrirferðarmestur. Margir vilja auka hlut sjávarafurðanna og heimila meiri veiðar.
Þeir benda á að það sé hrein og bein sóun á verðmætum að láta fiskinn svamla óáreittan innan 200 mílnanna og ráðleggja veiðar á 50-60 þúsund tonnum til viðbótar. Það vill Hafró ekki og LÍÚ ekki heldur að því er virðist. Þá getur sjávarútvegsráðherra ekkert gert, því hann ræður engu um þessi mál. Hafró og LÍÚ ráða ferðinni á meðan Jón Bjarnason og Guðjón Arnar sötra sitt kaffi í ráðuneytinu.
Hér kemur taflan frá Hagstofunni yfir innflutning og útflutning júnímánaðar:
Útflutningur alls | 47.955,1 |
Útfluttar sjávarafurðir alls | 19.491,8 |
Útfluttar landbúnaðarafurðir | 586,7 |
Útfluttar iðnaðarvörur | 27.082,4 |
Útfluttar aðrar vörur alls | 794,2 |
Innflutningur alls | 39.348,7 |
Innfluttar matvörur og drykkjarvörur | 3.834,4 |
Innfluttar hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 13.485,3 |
Innflutt eldsneyti og smurolíur | 3.849,2 |
Innfluttar fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 10.249,3 |
Innflutt flutningatæki | 2.876,1 |
Innfluttar neysluvörur ót.a. | 4.938,8 |
Innfluttar vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 115,7 |
Vöruskiptajöfnuður | 8.606,3 |
Nærri 9 milljarða afgangur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 602569
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.