12.7.2010 | 16:23
Einn vel kældan?
"Haglél gerði í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi fyrr í dag þótt nú sé miður júlí og því hásumar."
Haglél og hálka? Þetta er með ólíkindum. Ég er kominn í sumarfrí og er búinn að vera í garðinum mínum í allan dag, á stuttbuxum einum fata, kófsveittur og hálfbrenndur í sólinni og hlýjunni sem alltaf er hér í Grindavík.
En svona er ranglætið.
PS. Á einhver ískaldan bjór?
Haglél og hálka í Skötufirði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bjórinn drekkur maður ekki ískaldan, nema kannski í Grindavík.
Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 12.7.2010 kl. 17:05
OK, Haukur! Volgan eða kældan?
Björn Birgisson, 12.7.2010 kl. 17:23
Ég hélt að smekkur réði með hitastigið á bjórnum, en ekki einhver formúla.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.7.2010 kl. 17:33
Nú er Loftur karlinn búinn að setja færsluna aftur inn, en hefur mildað tóninn. En enn standa þó óhaggaðar textatilvitnair í Loft og önnur eitur umræða og þessháttar í athugasemdum, hann hefur ekki eytt því eins og mbl.is krafðist af mér.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.7.2010 kl. 17:39
Haglélið kom hingað í Vogana. Við sáum ekki yfir götuna, vegna dembunnar sem skall á, og gátum ekki átt samræður innan hússins, vegna druna frá haglinu er það skall á þakinu.
Og það er enn í gangi, 20 mínutum seinna.
Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 12.7.2010 kl. 18:18
Haglél getur hvar sem er í heiminum komið um hásumar.
Sigurður Þór Guðjónsson, 12.7.2010 kl. 19:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.