28.7.2010 | 20:42
Kallar brotthvarf Björgólfs nú á einkavæðingu í Rússlandi?
"Samkvæmt frétt BBC eru þetta mestu einkavæðingaráform Rússa frá árinu 1990 og liður í að reyna að koma böndum á fjárlagahalla ríkisins sem blés upp í kjölfar alheimsfjármálakrísunnar."
Rússar að einkavæða! Mikið ofboðslega vekur þetta upp sætar og ljúfar endurminningar í mínu marg einkavædda íslenska hjarta.
Björgólfur og Rússabjórinn og allt Rússagullið sem átti að nota til að greiða fyrir Landsbankann, sem reyndist svo vera ekkert og því allt fengið að láni í næsta íslenska banka, sparifé eldri borgara og annarra góðra Íslendinga, og auðvitað ekkert greitt af láninu, enda talinn algjör óþarfi á þeim tíma að standa í skilum með eitt eða neitt.
Sú firra var bara fyrir almenning. Alls ekki fyrir gjafarana og þaðan af síður fyrir þiggjendur fjöreggja Íslands. Skárra væri það nú.
Þetta eru dásamlegar endurminningar!
Það er ég viss um að Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni hlýnar verulega um hjartarætur við lestur þessarar fréttar um einkavæðinguna í Rússlandi. Ekki veitir þeim nú af hlýjunni!
Minningarnar eru svo dásamlegar, bæði í einkavæddum og frjálsum hjörtum!
Betri þó í eðlilegum hjörtum.
Alvöru hjörtum.
Rússar í einkavæðingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.