29.7.2010 | 12:02
Langhæstu launin
"Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var tekjuhæsti stjórnmálamaður á Íslandi í fyrra. Samkvæmt tekjusíðum Vísis var hann með 1591 þúsund krónur í laun á mánuði á síðasta ári.
Af öðrum launaháum stjórnmálamönnum má nefna Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins. Hann var með 1231 þúsund krónur á mánuði. Birgir Ármannsson alþingismaður var með 1164 þúsund í laun á mánuði í fyrra. Forsætisráðherrann, Jóhanna Sigurðardóttir, var með tæpar 1100 þúsund krónur." segir vísir.is
Vafalaust eru þessar tölur nærri sanni, en fréttin er kolrangt sett fram. Ef Ólafur Ragnar Grímsson er enn stjórnmálamaður, þá er Davíð Oddsson það líka.
Hann var samkvæmt fréttum með 3,8 milljónir á mánuði og ber því launalega séð höfuð og herðar yfir alla kollega sína.
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.