9.8.2010 | 13:32
Einokun eða samkeppni?
Íslenskur landbúnaður hefur löngum stundum verið til umræðu og skoðanir hafa verið mjög skiptar. Framsóknarmenn Íslands í öllum flokkum hafa séð til þess að óhagkvæm lítil bú eru um landið allt og komið á flóknu styrkja og niðurgreiðslukerfi.
Nú örlar á einhverri ógnun við kerfið og þá skal hún upprætt með lagavaldi.
Á brúsapallinum skal aðeins vera ríkismjólkin hans Marteins! Ef þar finnst mjólk, sem ríkið hefur ekki niðurgreitt, skal framleiðandi hennar sæta sektum eða varðhaldi!
"Með frumvarpi þessu er verið að innleiða algera einokun við vinnslu og markaðssetningu á mjólkurafurðum á Íslandi. Er þar með verið að hverfa frá því skrefi sem stigið var fyrir fáum árum þegar opnað var fyrir nokkra samkeppni á þessum markaði. Frumvarpið, ef af lögum verður, mun fela í sér eitt alvarlegasta afturhvarf frá frjálsri samkeppni sem sést hefur um langt árabil hér á landi. Hér er verið að velja einokun og hafna atvinnufrelsi." segja Samtök verslunar og þjónustu.
Samkeppniseftirlitið hefur svo sannarlega tjáð sig um þessa breytingu á búvörulögunum og ég hef aldrei séð opinbera stofnun ráðast jafn harkalega gegn áformum ríkisins og löggjafans. Þessi fyrirhugaða breyting á búvörulögunum fær þar algjöra falleinkunn.
Endilega lesið þetta merka plagg frá Samkeppniseftirlitinu hér að neðan.
SVÞ: Verið að innleiða algera einokun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.