27.8.2010 | 10:46
Málið dautt
"Í kjölfar ofangreindrar bókunar hef ég ákveðið að draga umsókn mína um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs til baka." segir Ásta H. Bragadóttir.
Skelfing gengur orðið illa að ráða fólk í opinberar stöður. Ekkert nema þrætur um hver sé hæfastur og þrætur um hver eigi að meta hæfnina og þrætur um hæfi þeirra sem fengnir voru til að meta hæfnina og svo koll af kolli.
Með gömlu aðferðinni hefði mátt leysa málið svona:
Jón Bjarnason settur í stól framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs og Ögmundur Jónasson flýgur þar með inn í ríkisstjórnina.
Málið dautt!
Ásta dregur umsókn til baka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 602640
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Snúa því við. Ögmund í Íbúðalánasjóðinn og Jón í stjórnarandstöðu í stað hans og svo má finna nýjan ráðherra (bara ekki Lilju Mós)
Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 27.8.2010 kl. 17:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.