6.1.2011 | 21:49
Af hverju er Guðlaugur Þór ekki búinn að höfða meiðyrðamálið?
"Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa farið fram á fund í viðskiptanefnd Alþingis vegna sölu Landsbankans á Vestia." Svona í framhaldi af fyrirspurn Guðlaugs Þórs um sama mál.
Af hverju þennan fund? Af hverju ekki bara fund um sölu Landsbankans sjálfs til mafíutengdra bruggara í Rússlandi?
Voru nú einhverjir velunnarar flokksins að missa spón úr jólaaskinum sínum?
Mér finnst Guðlaugur Þór frábær!
By the way!
Er hann nokkuð kominn í meiðyrðamál út af styrkjunum, sem hann vill ekkert upplýsa um?
Hvern ætlaði hann nú að kæra?
Var það nokkuð Björn Valur Gíslason, hinn orðhvati sjóari, sem nefndi orðið mútur í sambandi við ofurstyrkina?
Hann Guðlaugur blessaður sleppir því eðlilega, annars kemst allt upp!
Frábær strákur Guðlaugur Þór!
PS. BB Fréttir hafa fyrir því traustar heimildir að heimildamaskínan Gróa á Efstaleiti viti ýmislegt um þessa styrki og stutt sé í að hún upplýsi landsmenn um alla þá sem styrktu strákinn svona duglega.
Hvernig væri það?
Vilja fund um söluna á Vestia | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.