"Nýr stjórnmálaflokkur hefur verið stofnaður í Danmörku. Í flokknum, sem ber nafnið Fremtidens Danmark", eða Danmörk framtíðarinnar eru margir þekktir einstaklingar þar í landi."
Þetta er stórmerkileg frétt, sérstaklega hvað varðar það markmið flokksins að lyfta umræðunni upp á hærra plan og sækjast ekki eftir veraldlegum völdum.
Líklega vantar svona flokk á Íslandi.
Svo bráðvantar okkur hér á skerinu kalda flokk sem er málsvari millistéttarinnar í landinu. Fólksins sem vinnur fullan vinnudag, borgar alla sína skatta, borgar af öllum sínum lánum, borgar leikskólagjöldin, borgar meðlögin sín .................
Borgar alla sína reikninga. Alltaf.
Með öðrum orðum flokk fyrir fólkið sem heldur þessu þjóðfélagi gangandi.
Það á nú engan málsvara, enda er gengið vægðarlaust á hlut þess og því gert að greiða mestallan herkostnað þjóðfélagsins. Allt sukkið, óstjórnina og vitleysuna, en síðast en ekki síst að fjármagna bótakerfið.
Sífellt er talað um Ísland sem stéttlaust land. Það er auðvitað ekki rétt.
Hér er stétt láglaunafólks og bótaþega, millistéttin svokallaða og síðan stétt hálaunafólks.
Millistéttin er fjölmennust og heldur að mestu uppi bótakerfinu, sem er að verða svo útþanið að engu tali tekur. Þegar þúsundir bótaþega kjósa heldur bætur en vinnu, þá er eitthvað mikið að í þjóðfélaginu.
Þegar bótaþegar eru komnir á þingmannalaun er kerfið orðið sem krabbamein á þjóðarsálinni.
Hálaunamenn eru margir hverjir í góðri aðstöðu til að svíkja undan skatti. Gera það óspart og gagnast lítið við að greiða fyrir það apaspil sem bótakerfið er orðið og ofþanin stjórnsýslan.
Millistéttin þarf að eiga málsvara.
Hann er ekki til í dag. En þær eru margar beinaberar krumlurnar í vösum millistéttarfólksins.
Flokkur sem einbeitti sér að hagsmunum millistéttarinnar í landinu mundi sópa til sín fylgi.
Það er ég viss um.
Eitt er það sem alltaf flýtur og aldrei sekkur.
Það er hinn nýi Korktappaflokkur millistéttarinnar!
Nýr stjórnmálaflokkur í Danmörku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ertu að tala um Hægri græna eða Norræna Borgaraflokkinn?
Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 10.1.2011 kl. 20:20
Nei.
Björn Birgisson, 10.1.2011 kl. 20:33
Þjóðlegan hreinstefnuflokk með gömul gildi í hávegum ?
hilmar jónsson, 10.1.2011 kl. 21:32
Alvöru Korktappaflokk!
Björn Birgisson, 10.1.2011 kl. 22:09
Nafnið kveikir einhvernvegin óþægilega á tengingu við Framsóknarflokkin. Sama hversu oft honum hefur verið sturtað niður, þá hefur hann ávalt náð að selja loforð sín fyrir stjórnar setu með hinum hrunflokknum í gegnum tíðina.
hilmar jónsson, 10.1.2011 kl. 22:38
Hilmar, settu áramótamyndina af þér frekar inn! Ég elska rósir, en nenni ekki að tala við þær! Nóg er nú samt þvaðrað í mannheimum!
Ef þú lest bloggið mitt áttu að þekkja Korktappasamlíkinguna.
Björn Birgisson, 10.1.2011 kl. 22:52
Áramótamyndina ? hehe . Hugsaðu þér, ég er ennþá með glóðarauga, krambúleraður og með slappa sjón á öðru..
hilmar jónsson, 10.1.2011 kl. 22:56
Hafðu engar áhyggjur. Eitt auga dugar ágætlega. Ég hef verið blindur á eystra auganu frá fæðingu og það hefur ekkert háð mér í lífinu!
Björn Birgisson, 10.1.2011 kl. 23:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.