26.2.2011 | 19:22
Það er bara smámál að ógilda kosningar ef menn vilja og hafa Hæstarétt í rassvasanum
BB Fréttir hafa fyrir því áreiðanlega heimildamenn, sem ekki vilja koma fram undir nafni, að hópur manna hérlendis vinni nú að því að þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar og formanns Sjálfstæðisflokksins verði dæmd ógild af Hæstarétti Íslands ef meirihluti landsmanna samþykkir frumvarpið.
Samkvæmt heimildum BB Frétta skipa þennan hóp nokkrir einstaklingar, sem hvað harðast hafa gengið fram gegn samþykkt frumvarpsins, en þeir eru sagðir óttast mjög að þjóðin ætli að fylgja ríkisstjórninni í málinu, ekki síst eftir þær skoðanakannanir sem birst hafa um málið að undanförnu.
Heimildir BB Frétta herma að aðferðin sem þeir hyggist nota sé þessi. Komið verði fyrir vandlega földum, örsmáum myndavélum eins og notaðar eru til njósna, í nokkrum kjörklefum.
Ef svo þjóðin segir JÁ við frumvarpinu muni þeir láta vita af myndavélunum eftir slóttugum krókaleiðum og kæra málið til Hæstaréttar. Aldrei mun komast upp hver setti myndavélarnar upp. Ekki þarf að efast um hvað Hæstiréttur gerir í málinu. Eitt er nú dulítið pappaskilrúm, en heil myndavél með upptökur af fjöldanum öllum er allt annar og alvarlegri hlutur.
Samkvæmt heimildum BB Frétta hefur hópurinn tryggt sér samvinnu við valda húsverði og kennara í nokkrum grunnskólum vegna uppsetningar myndavélanna, ekki tókst að fá það staðfest almennilega, en þess ber að geta að fjölmargir eru með lykla að hverjum skóla. Margir þeirra eru auðvitað í hópi NEI liða í þessu máli.
Fari svo að þjóðin segi NEI við Icesave frumvarpinu munu myndavélarnar verða fjarlægðar í skjóli myrkurs þegar úrslit liggja fyrir, rétt eins og ekkert hafi í skorist.
Einn heimildamanna BB Frétta orðaði þetta svona:
"Þetta eru mjög klárir karlar sem að þessu standa og einn þeirra orðaði þetta svona":
"Við höfum þetta allt í hendi okkar og svo er ekkert mál að spila á Hæstarétt eins og hljóðfæri. Hann mun alltaf dansa eftir okkar strengjum."
Ja hérna!
(Endurbirt, aðeins breytt)
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er alvarlegt, en líklega rétt. Það hefur sýnt sig undanfarið, að hægri öfgamenn svífast einskis. Veiklundaðir menn í hæstarétti og forsetaembætti hafa verið auðveldir leiksoppar þeirra.
Doddi (IP-tala skráð) 26.2.2011 kl. 19:36
Alltaf gaman að leika sér, Sveinn minn!
Björn Birgisson, 26.2.2011 kl. 19:59
Það er nú svolítill ævintýrablær yfir þessu strákar. En þið skuluð ekkert vera hræddir, þetta fer einhvern veiginn!!!
Eyjólfur G Svavarsson, 26.2.2011 kl. 20:55
Nú er tími samsæriskenninga- sem aldrei fyrr.
Sævar Helgason, 26.2.2011 kl. 20:58
Ævintýralegur blær? Vissulega. En þetta getur gerst Eyjólfur minn!
Björn Birgisson, 26.2.2011 kl. 20:58
Sævar, er þessi samsæriskenning ekki fullboðleg í kenningaflóðinu?
Björn Birgisson, 26.2.2011 kl. 21:01
Björn !
Jú hún er alveg óhugnanlega snjöll.
Sævar Helgason, 26.2.2011 kl. 21:03
Takk Sævar minn, þú sérð að þetta er ekkert mál! Sæmileg hugarleikfimi getur leitt bæði til góðra og slæmra verka!
Björn Birgisson, 26.2.2011 kl. 21:11
það væri nú alveg í stíl ef þetta færi svona.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 26.2.2011 kl. 21:31
Ómar Bjarki, þetta fer svona! Sannaðu til!
Björn Birgisson, 26.2.2011 kl. 22:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.