Nú þarf nýja hugsun. Út fyrir rammann. Hugsun heimsborgara, en ekki kotbúans, sem arðrænir sjálfan sig og allt í kring um sig, án þess að vita af því!
Fámennið auðveldar stuld þeirra betur settu á öllu naglföstu, handföstu og huglægu.
Hér á Íslandi er pexað um sameiningar hreppa, sem í búa svo fáir að þeir geta hvorki haldið almennilegt þorrablót, né önglað saman í fótboltalið!
Nú er Jonas Gahr Støre (fæddur 25. águst 1960 í Oslo), utanríkisráðherra Noregs, staddur hérlendis og Norðmenn voru að finna nýja gullæð svarta gullsins, á meðan Drekasvæðið bíður.
Ný hugsun.
Sameinum öll Norðurlöndin í eitt ríki.
Þitt hlutverk er að stinga upp á nafninu!
Athugasemdir
Norðurríkjasambandið og ESB er velkomið að koma þar að en ekki með þeirra skilirðum heldur okkar :))
Marteinn Unnar Heiðarsson, 30.9.2011 kl. 20:30
Við setjum aldrei skilyrði. Við semjum.
Björn Birgisson, 30.9.2011 kl. 20:34
Ég verð að segja það Björn að mér finnst þín tillaga miklu áhugaverðari heldur en að við gleypumst inn Evrusambandið sem er gjörsamlega á brauðfótum, ég sagði svona í hálfkæringi við mína kunningja og vini þegar hrunið varð að við ættum bara að segja okkur undir Noregskonung og biðjast afsökunar á brotthlaupinu forðum, en það er önnur saga ég held að sameinuð Norðurlönd yrðu gríðarlega sterkt ríki.
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 30.9.2011 kl. 21:51
Takk, Kristján B. Kristinsson!
Björn Birgisson, 30.9.2011 kl. 22:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.