Þá er bara að finna flokkinn sinn!

Mig sárvantar almennilegan stjórnmálaflokk til að styðja. Flokk sem uppfyllir að minnsta kosti 15 af eftirfarandi stefnumiðum:

1. Að vilja einkavæða heilbrigðiskerfið að hluta eða öllu leyti
2. Að vilja einkavæða menntakerfið að hluta eða að öllu leyti.
3. Að vilja hætta allri skattlagningu til tekjujöfnunar í þjóðfélaginu.
4. Að vilja tryggja fáeinum aðgang að helstu auðlindum landsins.
5. Að vilja einkavæða orkulindir og orkusölu í landinu.
6. Að vilja gróða fárra án tillits til aðferðanna sem beitt er.
7. Að vilja forðast heimskulegar þjóðaratkvæðagreiðslur um viðkvæm mál.
8. Að vilja óbreytta Stjórnarskrá um aldur og ævi.
9. Að vilja að allt vatn sem fellur af himnum ofan verði eign landeigenda.
10. Að vilja gjaldmiðil sem kostar íbúðakaupendur 1 milljón á ári í aukaútgjöld.
11. Að vilja einkavæða val á dómurum landsins á báðum stigum.
12. Að vilja afnema aðkomu Ríkisútvarps á fjölmiðlamarkaði.
13. Að vilja ríkisvæða allt tap atvinnulífsins og einkavæða gróðann.
14. Að vilja láta dæma óæskileg kosningaúrslit ógild vegna formgalla.
15. Að vilja tryggja áhrif sín með skipun Seðlabankastjóra.
16. Að vilja óhefta styrki og framlög til flokksstarfseminnar.
17. Að vilja alls ekki ríkisstyrki til starfsemi flokksins.
18. Að vilja aldrei viðurkenna mistök sín.

Þetta er nú allt og sumt. Annað var það nú ekki!

Þá er bara að finna flokkinn sinn!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Írar refsuðu sínum Sjálfstæðisflokki, þannig að hann fékk aðeins 15%, en hérna ætla 40% að kjósa þessi svín.

Sveinn R. Pálsson, 14.11.2011 kl. 16:54

2 identicon

Hmmm, þetta verður erfitt val hjá þér :-o

ASE (IP-tala skráð) 14.11.2011 kl. 17:22

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Björn, það kemur ekkert til greina annað en fjórflokkurinn. Verst að hann býður fram undir 4 kennitölum. :)

Kolbrún Hilmars, 14.11.2011 kl. 17:36

4 Smámynd: Arinbjörn Kúld

X-D eða X-B og málið leyst. Annars er Kolbrún með þetta.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 14.11.2011 kl. 19:55

5 Smámynd: Björn Birgisson

Ég þakka innlitin!

Björn Birgisson, 14.11.2011 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband