Styrmir snýr margfrægri sundrungu á vinstri vængnum upp á Sjálfstæðisflokkinn!

Styrmir Gunnarsson er líklega sá skrifari af hægri vængnum sem á bestu pólitísku gleraugun. Hinir eru að mestu skrifblindir, lesblindir og siðblindir þegar kemur að gjörðum Sjálfstæðisflokksins, stefnu hans og markmiðum. Hér snýr Styrmir hinu endalausa hjali hægri manna um sundrungu á vinstri vængnum upp á Sjálfstæðisflokkinn! Hann er sá eini í flokknum sem hefur kjark og vit til þess. Always follow the Leader, sagði höfuðmaurinn forðum, en nú eru fótgönguliðarnir í maurahjörðinni eitthvað farnir að villast!

 

Sundrung á hægri vængnum

 

"Getur verið að eitt helzta vandamál Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í vor verði einfaldlega sundrung á hægri vængnum?

Viðreisn er auðvitað fyrst og fremst klofningsbrot úr Sjálfstæðisflokknum en athygli vekur að framboðslisti Flokks fólksins í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík byggir að einhverju leyti á fólki sem á sér sögu í starfi á vettvangi Sjálfstæðisflokksins

Þótt Miðflokkurinn sé fyrst og fremst klofningsbrot úr Framsóknarflokknum fer ekki á milli mála að hann er orðinn einn af keppinautum Sjálfstæðisflokksins um fylgi ákveðinna kjósendahópa.

Að auki er svo til kominn nýr listi, Höfuðborgarlistinn, sem líklegur er til að blanda sér í baráttuna um áþekka kjósendahópa.

Þarna eru fjórir flokkar og framboðslistar, sem sækja að einhverju leyti á sömu kjósendamið og Sjálfstæðisflokkurinn.

Þetta þýðir að til þess að ná verulegum árangri í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík þurfa frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins að ná til þessara kjósenda.

Og um leið vaknar sú spurning hvers vegna einhver hluti þess fólks sem skipar þessa fjóra framboðslista í Reykjavík hefur yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn.

Svipuð staða kann að vera fyrir hendi í sumum nágrannasveitarfélögum ReykjavíkurMiðflokkurinn hefur kynnt til sögunnar sterkan frambjóðanda í Kópavogi. Einhverjir hópar úr Bjartri Framtíð hafa náð saman við Viðreisn í nágrannasveitarfélögunum.

Þetta er flóknari staða en oftast áður á hægri vængnum en augljóst að veruleg fylgisaukning Sjálfstæðisflokksins, eigi hún að verða að veruleika, hlýtur að þurfa að koma frá kjósendahópum, sem þeir flokkar og framboð, sem hér hefur verið vísað til munu sækja í."

 

Algjörlega hárrétt greining hjá Styrmi!Styrmir (3)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Steini Briem, 7.4.2014:

Sjálfstæðisflokkurinn
hefur allt frá árinu 1929 fyrst og fremst verið kosningabandalag frjálslyndra og íhaldsmanna.

Fólk sem kýs Sjálfstæðisflokkinn aðhyllist einstaklingshyggju, frjálslyndi, frjálshyggju eða íhaldsstefnu.

Meira kraðak er nú varla til í einum stjórnmálaflokki og samstaðan oft lítil, enda hefur Sjálfstæðisflokkurinn margsinnis klofnað og brot úr flokknum myndað ríkisstjórn með öðrum stjórnmálaflokkum.

Þorsteinn Briem, 7.4.2018 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband