Er nema von að sumir glotti og aðrir hleypi hlátrinum út?

Það er mikið portkonustandið og framhjáhaldið hjá sumu fólki. Fólki með annarlegar pólitískar skoðanir í farteskinu og tryggð kanínunnar á öðrum stað!

NEI sinnar í Icesave málinu nánast dýrka og tilbiðja Alþýðubandalagsmanninn Ólaf Ragnar Grímsson, sem er hættur að vera kommi og orðinn að guði þeirra!

NEI sinnar í ESB málinu nánast dýrka og tilbiðja hæfileikaminnsta kommaskoffínið sem nokkru sinni hefur sýnt sig í grennd við þinghúsið við Austurvöll!

Orðið NEI er orðið samheiti yfir hægri menn sem tilbiðja kommatitti að skilgreiningu Davíðs!

Er nema von að sumir glotti og aðrir hleypi hlátrinum út?


Er dómstóll götunnar rétt handan við hornið?

Dómskerfið í hverju landi er endalaus línudans. Hvar á línunni eiga refsingar að liggja? Hvenær er ofgert og hvenær vangert?

Íslenskur nauðgari og níðingur fær 7 ára dóm. Laus eftir 3,5 ár. Líklega. Það er með öllu óásættanlegt.

Íslenska dómskerfið nánast dekrar við glæpamennina. Réttur þeirra er langt um betur varinn, en þeirra sakleysingja, sem ólukkunnar vegna verða á vegi þeirra.

Þegar dómskerfi þjóðar bregst, tekur dómstóll götunnar til sinna ráða, með grimmdarlegum dómum.

Viljum við sjá það gerast hér á Mörlandi? Það er handan við hornið!


Saklausar hryðjuverkadruslur?

Mannvitsbrekkur á Íslandi eiga það til að verða sérlega ferkantaðar í framan á ögurstundum. Ein slík brekkan var þegar helvítis Bretarnir settu á okkur hryðjuverkalögin.

Nú ætla leiðtogar þjóðar vorrar að kanna rétt þjóðarinnar til skaðabóta frá Bretum.

Litla saklausa Ísland lætur ekki stórþjóð taka sig í óæðri endann sleipiefnalaust!

No way! Never!

Hvað um þetta?

Þegar breska ríkisstjórnin varð vör við stórfellda flutninga fjármagns úr hirslum íslensku bankanna og annarra banka til Cayman og annarra aflandseyja, þá varð mælir þeirra fullur?

Saklausa Ísland?


Helvítið hann Steingrímur, Litla gula hænan og allir þessir andskotans útlendingar!

Hrunið haustið 2008 varð ekki af mannavöldum. Það liggur nokkuð ljóst fyrir. Hverjir eru þá sekir?

Ekki við Sjálfstæðismenn. Ekki við Samfylkingarmenn. Ekki við Framsóknarmenn. Ekki við húsbyggjendur. Ekki við atvinnurekendur. Ekki við bankamenn. Ekki við Seðlabankamenn. Ekki við útrásarmenn. Ekki við í dómskerfinu. Ekki við í fjármálaeftirlitinu. Ekki Guð sem beðinn var um blessun.

Þrennt þarf að rannsaka vel í þessu máli:

Helvítið hann Steingrím, Litlu gulu hænuna og alla þessa andskotans útlendinga!

Annað er það nú ekki!

Það sem ekki hefur skaðast af mannavöldum geta mennirnir illa bætt!


Ólafur Ragnar á að hætta á Bessastöðum og einhenda sér í að bjarga heiminum með öllum hinum stórmennunum

Ólafur Ragnar Grímsson forseti á að hafa hlutina eins og Bill Clinton, Al Gore og fleiri góðir menn. Ferðast um heiminn, halda fyrirlestra í háskólum og á ráðstefnum.

Láta ljós sitt skína. Þá líður honum best.

Hann vill vera í útlöndum við slíka iðju, milli þess sem hann spjallar við fjölmiðla, en ekki ráðamenn.

Ríkisstjórnir Íslands sjá um þann þáttinn, enda erfiðari.

Þar sem Ísland er orðið nokkrum númerum of lítið fyrir kappann, er eðlilegt að hann söðli um, hætti á Bessastöðum og einhendi sér í að bjarga heiminum.

Hann er á ævilaunum hjá þjóðinni.

Það er alveg nóg. Aðrir geta greitt ferðakostnaðinn.

Varla gerir hann það, er ekki þannig maður.

Frekar en aðrir fæddir og uppaldir í jötu.


Verður núverandi formaður gerður að óbreyttum fótgönguliða eftir tæpa tvo mánuði?

Hvað gerir Bjarni Benediktsson ef Hanna Birna fellir hann úr formannsstólnum?

Heldur hann áfram þingmennsku eins og óbreyttur fótgönguliði?

Fer hann kannski í fýlu og hættir þingmennsku?

Gæti auðvitað farið í viðskiptin!

Ef hann gerir það er Óli Björn Kárason ritstjóri næstur inn og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi yrði þá 1. varamaður þingmannanna fjögurra sem flokkurinn á í Suðvesturkjördæmi.


Hvernig ríkisstjórn vilja kosningasnapar fá?

Má bjóða þér helmingaskiptastjórn D&B (Dánarbúsins)? Viltu vekja þann draug upp frá dauðum? Það gæti hæglega orðið möguleiki næst þegar kosið verður. Hér er hugmynd til að skoða með opnum hug að sjálfsögðu. 

Birkir Jón Jónsson viðskiptaráðherra,

Guðlaugur Þór Þórðarson velferðarráðherra,

Hanna Birna Kristjánsdóttir forsætisráðherra,

Einar Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Vigdís Hauksdóttir menntamálaráðherra,

Gunnar Bragi Sveinsson iðnaðarráðherra,

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra,

Eygló Harðardóttir umhverfisráðherra,

Ólöf Nordal innanríkisráðherra,

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson utanríkisráðherra.

Þarf Ísland svona stjórn?


Hver segir svo að pólitíska vindáttin hafi ekki áhrif á ást hinna reikulu?

"Ólafur Ragnar Grímsson, forseti, tilkynnti á blaðamannafundi á Bessastöðum að hann hefði ákveðið staðfesta ekki fjölmiðlalögin, sem Alþingi samþykkti í síðustu viku og vísa þeim þannig í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fari fram eins fljótt og unnt er." (Mbl. 2. júní 2004)

Treysti sú ríkisstjórn þjóðinni fyrir málinu?

Nei, nei. Hún felldi frekar lögin úr gildi í júlí 2004.

Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson sáu til þess.

Hatur Sjalla á forsetanum náði nýjum hæðum og varð eiginlega algjört.

Nú elska þeir hann allir og nánast tilbiðja!

Hver segir svo að pólitíska vindáttin hafi ekki áhrif á ást hinna reikulu?


Hvað gerir Lilja Mósesdóttir? Verður hún áfram í stjórnmálum?

Lilja Mósesdóttir skrifar á Facebook síðu sína í dag:

"Stöðugar fullyrðingar um spillingu og vanhæfi þingmanna fá mann til að velta fyrir sér hvort ekki sé kominn tími á kosningar og nýtt fólk."

Skoðun Lilju á mörgum þingmönnum liggur líklega þarna á milli línanna.

Aðspurð hvort hún hyggi á framboð að nýju, svarar Lilja því til að hún geti vel hugsað sér að gera ýmislegt annað.

Allir geta svarað á þessum nótum!

Mig grunar þó að hin pólítíska baktería hafi náð svo sterkum tökum á Lilju að hennar nafn verði nefnt á einhverjum kjörseðlum.

En hverjum og hvar?


60 dagar

Nú eru 60 dagar þar til landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst.

Margt bendir til þess að hann geti orðið sögulegur, en svo gerist kannski fjandakornið ekki neitt!

Hanna Birna hlýtur að fara að tilkynna ákvörðun sína og þá í leiðinni varaformannsefni sitt.

Heykist hún á framboðinu verður aðeins einni spurningu ósvarað:

Hvað um Davíð, tekur hann slaginn fyrir tilbiðjendur sína?

Sem ég held að hann geri alls ekki.

Grunar þó að innst inni langi hann til að fella Bjarna og sýna þannig mátt sinn.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband