"Við viljum auðvitað sýna samstöðu með öllu þessu fólki, sem enn hefur ekki efni á að borga reikningana okkar, en þess tími mun koma!"

1. október 2011. Austurvöllur. Þennan dag mætir heimskasta þjóð á vesturhveli jarðar þeim fulltrúum sem hún sjálf hefur valið til að gæta hagsmuna sinna. 83%. Geta þau haft rangt fyrir sér? Þjóðin mun líta í spegilinn. Mölbrjóta hann síðan. Hallmæla framleiðanda spegilsins, en aldrei sjálfri sér! Krefjast síðan betri afurðar. Betri spegla. Í þrívídd og endilega með lyktarspjaldi! Framtíð Íslands hlýtur að vera fólgin í fjórðu víddinni, fyrst hinar klikkuðu allar. Ilmur eða skítafýla?

‎1. október 2011. Austurvöllur. "Mér var uppálagt af bankanum að fara úr 250 fermetrum í 450 fermetra, vegna þess að kjölturakkinn ætti von á sér, þessi líka dúllan! Svo var mér líka ráðlagt að fá mér Hummer, því hann væri miklu betri í snjó, en upphækkaði Landkrúserinn, sem minn ætlaði að nota í veiðina! Stukkum auðvitað á ráðgjöfina, enda í anda alls þess sem við lifðum fyrir!" Hér? Af hverju hér á Austurvelli? "Við viljum auðvitað sýna samstöðu með öllu þessu fólki, sem enn hefur ekki efni á að borga reikningana okkar, en þess tími mun koma! Kalt? Viltu pelsinn?"

‎1. október 2011. Austurvöllur. Tímamótadagur á Íslandi. Fulltrúar 83% kjósenda mótmæla eigin vali á fulltrúum á löggjafarsamkomuna, á fundi sem haldinn skal í nafni Samstöðu. Samstöðuglundur væri nær lagi sem nafngift á selskapinn.

1. október 2011. Austurvöllur. Ætli félagsmenn Samtaka atvinnulífsins (SA) mæti á samstöðufundinn á Austurvelli? Því ekki? Til að sýna samstöðu með fólkinu sem fjármagnar afskriftirnar eftir hrundansinn þeirra við Mammon. Þann 1. október munu allir Íslendingar fyllast heilagri samstöðu, tala tungum og hefja undirbúning næsta sundurlyndis, sem síðan verður staðfest í næstu kosningum. 1. október verður síðan minnst sem dagsins sem Íslendingar fundu upp eilífðarsundurlyndið, en þó í leit að samstöðunni.

Svo mörg voru þau orð.


Sagði ekki einhver að kjósendur hérlendis væru fífl?

Bylgjan var með könnun sem leiddi í ljós að 3% virða okkar málglaða þingheim.

Allir sjá nú að niðurstaðan er óttalegt bull, en skítt með það.

Árið 2009 voru 227.843 Íslendingar á kjörskrá.

Á kjördegi, þann 25. apríl, kusu 187.183 kjósendur, eða um 83% þjóðarinnar, sem er dágóð kjörsókn, sér 63 fulltrúa á Alþingi.

Af hverju var allur þessi skari að krossa við fulltrúa sem hann vill helst af öllu krossfesta nú?

Ljóst er að þessi sömu 83% bera mikla ábyrgð á 3% vinsældaliðinu við Austurvöll!

Sagði ekki einhver að kjósendur væru fífl?


Nú vilja þeir meira frá ríkissjóði og láta rétt eins og lausaganga þeirra í þjóðfélaginu sé sjálfsögð!

Samtök atvinnulífsins snökta svolítið duglega núna og minna á sig með snöfurmannlegum hætti.

Hafa ekki allir þokkalega þroskaðir Íslendingar leitt hugann að því hve duglegir fjölmargir félagar SA voru að hjálpa bönkunum að koma þessu þjóðfélagi á hvínandi hausinn?

Það merka hjálparstarf var reyndar ekki rekið fyrir atvinnulífið í landinu.

Miklu heldur réði einstaklingsbundin græðgin þar ferðinni.

Þessir menn kostuðu þannig þjóðfélagið hærri fjárhæðir en ég kann að nefna.

Nú vilja þeir meira frá ríkissjóði!

Miklu meira!

Og láta rétt eins og lausaganga þeirra í þjóðfélaginu sé sjálfsögð!


Þekkir þú þennan eigulega kropp?

"Hóla-Jóna var meðalkvenmaður á hæð, en hún var umfangsmikil um brjóst og herðar, lendabreið og stuttfætt og hún vagaði þegar hún gekk. Höfuðið var miðlungi stórt, hárið frekar stutt, en þykkt, gróft og gljáandi og ljósjarpt á litinn. Ennið var breitt, en lágt, og það var nokkuð langt á milli grárra augnanna. Hún var kjálkamikil og munnvíð og varirnar í þykkara lagi. Tennurnar voru breiðar. Hún var alls ekki ljót eða ógeðsleg, en hún var lurksleg og maður hefði getað látið sér detta í hug að skaparinn hefði skilað henni í hasti til bráðnauðsynlegrar brúkunar ........"

Hver þekkir þennan kropp?

Hver er höfundur textans?


Afæturnar verða skornar frá til að rýma til fyrir nýrri kynslóð og tegund afæta

Kreppan í menningarlífinu er rétt að byrja. LA, LR og Þjóðleikhúsið munu þurfa að skera starfsemi sína niður um 50-75% á næstu árum.

Heiðurslaun listamanna munu nánast hverfa (Þráins líka) og listamannalaun frá Alþingi verða dregin saman, ekki síður en framlögin til leikhúsanna.

Listaháskóli Íslands, Kvikmyndaskólinn og fleiri slíkir munu fara áratugi aftur í framlögum.

Sinfónían gerð að kvintett, fámennishljómsveit eða lögð niður.

Af hverju allt þetta?

Til að bjarga mannslífum á heilbrigðisstofnunum að sögn.

Til að leiðrétta sjálftökurugl þeirra sem ekki framfleyta sér.

Til að rýma til fyrir nýjum gæðingum í ríkisjötunni.

Til að þykjast tryggja aflagningu brjálæðisins í ríkisútgjöldunum.

Hringrás sjálftökunnar og heimskunnar.

Sem verður þó aldrei til langframa.

Aðeins mjög tímabundið.


mbl.is Skoða framhaldið hjá LA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gerðardómurinn kann að reynast leyniskyttum á rjúpnaveiðum vel!

Fyrir rjúpnaveiðimenn eru góðar hliðar á væntanlegu rjúpnaveiðibanni frá Svandísi Svavarsdóttur.

Lögreglumenn eru margir miklir veiðimenn og þeir munu örugglega frekar setja góðan disk í tækin, en að eltast við veiðikollega sína upp um fjöll og firndindi, í slabbi, hríð og haustnepju, hvaðan sem hún kemur!

Gerðardómurinn kann að reynast leyniskyttum vel!


Gerðardómurinn farinn að segja til sín hjá lögreglumönnum

Lögreglumenn á Suðurnesjum velta fyrir sér að segja sig úr óeirðasveit lögreglunnar.

„Ég tel góðar líkur á því að svo verði. Það hefur aldrei verið neinn samningur um þessi mál og menn hafa fyrst og fremst litið á það sem siðferðislega skyldu sína að sinna þessu. Við fáum tvo tíma auka fyrir að klæðast búningnum, þannig að við fáum borgaða 14 tíma fyrir að standa 12, það er allt og sumt,"segir Hjálmar Hallgrímsson hjá Lögreglufélagi Suðurnesja, en 24 lögreglumenn frá Suðurnesjum sinna starfi í óeirðasveit lögreglunnar." (Víkurfréttir)


Baráttuaðferðir fólks og flokka mótast af siðferðinu eða öllu heldur siðferðisskortinum

Það brennur við að málefni ofurhitni í umræðunni, en verði síðar álíka gleymd og síðasti geirfuglinn.

Gott dæmi um þetta er aðkoma AGS að málefnum Íslands.

Margir lýstu AGS sem mestu glæpasamtökum heimsins.

Svo gekk samstarfið ljómandi vel að mestu.

Nú eru allir hættir að tala um glæpamennsku AGS.

Ekki vegna þess að eðli AGS hafi breyst nokkuð.

Nei, nú hentar glæpamálflutningurinn ekki lengur af því að hann hljómar svo afkáralega.

Baráttuaðferðir fólks mótast af siðferði þess.


Afdalamennska, heimska og durtsháttur nátttröllanna á tækniöld

Í því, að þora ekki og vilja ekki ræða við ESB báknið, kristallast eftirfarandi því skýrar sem tíminn líður og fleira kemur í ljós.

Afdalamennska, heimska og durtsháttur.

Þjóðrembu- og þjóðernishyggja.

Hagsmunagæsla fárra á kostnað heildarinnar.

Algjört vantraust á getu þjóðarinnar til að ráða sínum ráðum.

Sjúkleg hræðsla við breytingar og ný hjólför.

Heimóttarleg blinda á getu handónýtrar krónunnar.

Manísk hræðsla við samstarf við útlendinga, innanlands sem ytra.

Skuggaleg tvöfeldni varðandi útlendinga á Íslandi og landa vora ytra.

Íslendingar mega eiga allt í útlöndum, en erlendir borgarar ekkert hér.

Er þá aðeins fátt eitt nefnt að því sem blasir við hverjum hugsandi manni.

Eiginlega býður mér við svona liði.


Myrkur á Mörlandi

Það er nákvæmlega engin ástæða til að halda að bjart sé framundan í þjóðarbúskapnum. Ástandið er einfaldlega þannig.

Ríkisstjórnin eins og hún er.

Stjórnarandstaðan eins og hún er.

Sætaskipti þar hefðu engin áhrif.

Kosningar nú væru líklegri til að auka vandann, en að draga úr honum.

Þetta vita stjórnmálamennirnir í andstöðunni og því er allt þeirra tal og hjal um kosningar byggt á blekkingum.

Ríkisstjórnin vill aðeins hanga valdanna vegna og halda soltnum úlfunum frá kjötkötlunum.

Pattstaða.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband