26.6.2010 | 15:38
Góður árangur Péturs H. Blöndal
Við skulum láta þennan dag verða vendipunkt í sögu Sjálfstæðisflokksins, sagði Bjarni Benediktsson nýendurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, við dynjandi lófatak viðstaddra.
Vissulega er þetta vendipunktur, en hvort hann er af hinu góða skal ósagt látið. 62% landsfundarmanna ákváðu að styðja til formanns mann sem er flæktur í fjármálasukk sem leiddi til 16 milljarða greiðslu úr ríkissjóði til að bjarga Sjóvá frá falli. Í ríkissjóði er fátt annað en skattpeningar almennings sem eiga ekki að fara í svona ævintýramennsku.
Heilum 38% landsfundarmanna leist ekkert á þennan valkost.
Árangur Péturs Blöndal er athyglisverður. Hann lýsti yfir framboði sínu nokkrum klukkustundum fyrir kjörið og vann enga forvinnu. Hvað hefði gerst ef hann hefði unnið að málinu í nokkrar vikur og beitt kröftum sínum eins og menn gera í aðdraganda kosninga?
Bjarni kjörinn formaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hver sem er hefði náð að skáka Vafningsdindlinum, hefði eitthvað verið lagt í það.
hilmar jónsson, 26.6.2010 kl. 15:41
"..flæktur í fjármálasukk". - Helber ósannindi - og það sem meira er - þú veist betur Bjössi minn !
Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 16:42
Nei, Kalli, ég veit ekki betur.
Björn Birgisson, 26.6.2010 kl. 16:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.