28.6.2010 | 18:18
Hvernig kemst lið neðar á vellinum?
Íþróttaspekingar fjölmiðlanna eru alltaf að segja okkur öllum frá því sem við sjáum með berum augum í sjónvarpinu. "Siggi sendir á Nonna, sem missir boltann út af og þá fær hitt liðið innkast." Svo eru þeir líka gáfulegir stundum. Stundum um of.
Svo er okkur alloft sagt að lið liggi neðarlega á vellinum og mætti gjarnan færa sig ofar á völlinn og sækja meira. Síðast þegar ég vissi var knattspyrnuvöllurinn marflatur og aðeins hið grasi gróna yfirborð hans notað í leiknum, ekkert neðar og ekkert ofar. Knattspyrnuvöllur er ekki lagkaka.
Mín vegna mættu liðin á HM liggja framar á vellinum og sækja meira, pressa meira á andstæðinginn á hans eigin vallarhelmingi, því þá verður meira fjör í leiknum. Því virðast þau ekki þora. Fyrir vikið verður leikurinn óttalegt dútl í kring um miðjusvæðið og boltinn þar mest allan leikinn.
Það sem ég hef séð til HM hefur valdið mér vonbrigðum.
Öruggur sigur Brasilíu á Chile | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frá markverði sækjandi eða varnar-liðsins séð, liggur liðið "neðar" þegar það er nær markverði sínum, og framar því lengra frá markverði eigin liðs liðið er.
Íþróttaspekingur (IP-tala skráð) 28.6.2010 kl. 19:25
Íþróttaspekingur, ertu nokkur íþróttaspekingur?
Björn Birgisson, 28.6.2010 kl. 19:34
Brassarnir eru fjandi góðir þótt Sókrates, Zico og Pele séu ekki í liðinu!
Björn Birgisson, 28.6.2010 kl. 19:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.