Pukur og réttindi

"Hjálmar Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, vill ekki gefa upp nöfn þeirra sem sóttu um stöðu prófessors í leiklist við skólann. Hann ber fyrir sig trúnaði við umsækjendur. Hjálmar réð nýlega leikarann og leikstjórann Stefán Jónsson í stöðuna.

Eftir því sem DV hefur greint frá mat valnefnd skólans og rektor hans það svo að reynsla Stefáns væri það mikil að hún myndi vega upp á móti þeirri staðreynd að hann hefur hvorki lokið meistaraprófi né doktorsprófi í greininni."
segir visir.is

Og ég sem var að vona að svona pukur og nafnleynd tilheyrðu liðinni tíð. Nú er okkur sagt að allt eigi að vera svo gegnsætt.

Það þarf ekki mikið hugmyndaflug til að lesa út úr þessari frétt að í raun skorti Stefán Jónsson ítrustu réttindi til að gegna þessari stöðu, hvað sem líður færni hans og hæfileikum að öðru leyti, sem ég efast reyndar ekkert um. Síður en svo.

Hvaða réttindi höfðu hinir umsækjendurnir sem Hjálmar vill ekki nafngreina?

Hér er önnur frétt:

Togaraútgerð úti á landi hefur ráðið Jón Stefánsson sem skipstjóra á Dallinn OK 123, nýtísku frystitogara. Jón hefur verið háseti hjá útgerðinni lengur en elstu menn muna og hefur því mikla reynslu, en skipsstjórnarréttindi hefur hann engin fyrir svona stórt skip. Þess ber þó að geta að Jón er með pungaprófið. Nokkrir skipstjórar sóttu um stöðuna, en ekki fæst uppgefið hverjir þeir voru. Cool 

Núorðið snýst allt um réttindi.

Kannski full mikið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband