Íbúar kjósi sér bæjarstjóra?

Er íbúalýðræði í sveitarfélögum landsins ekki bara virkt í einn dag á fjögurra ára fresti þegar grannt er skoðað? Tillaga Ingibjargar Pálmadóttur um beina kosningu bæjarstjóra er allrar athygli verð og það sveitarfélag sem ríður á vaðið  og lætur íbúana ráða mun setja fordæmi sem ekki verður undan vikist að fylgja annars staðar. 

"Ingibjörg Pálmadóttir, fv. alþingismaður og ráðherra, á Akranesi hefur ritað grein í Morgunblaðið og Skessuhorn þar sem hún hvetur nýja bæjarstjórn til að fara óhefðbundna leið við val á nýjum bæjarstjóra á Akranesi. Leggur hún til að boðað verði til íbúakosningar þar sem kosið yrði um þá fimm umsækjendur sem ráðningarstofa mat hæfasta af þeim 39 sem sóttu um starfið.

"Það var mál til komið að menn áttuðu sig vel á því að það þarf að hlusta á vilja bæjarbúa og stilla saman strengi, óháð klíkuskap og pólitík. Við erum þegar allt kemur til alls lítið samfélag sem eigum alla möguleika að vera fremstir meðal jafninga en til þess þurfum við að nýta þau tækifæri sem hvarvetna bjóðast og setja til hliðar þröngsýni og skilja nauðsyn samvinnu fyrir heildina,” segir Ingibjörg meðal annars í grein sinni. Aðspurð segist hún vita að eftir birtingu greinarinnar í Morgunblaðinu í síðustu viku hafi hún heyrt að bæjarfulltrúar væru henni ekki sammála.

"Engu að síður tel ég umræðuna holla,” segir Ingibjörg. Tekið af skessuhorn.is

Bara ein spurning:

Ætli Ingibjörg blessunin hefði nokkurn tímann sett þessa hugmynd fram væri hún enn í pólitíkinni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bæjarbúar á Akranesi eru ævareiðir því þeir óttast mjög að Samfylkingin ætli að ráða gjörspilltan fyrrverandi þingmann Steinunni Valdísi sem hrökklaðist úr þingmennsku vegna milljónastyrkja frá auðmönnum og útrásarhyskinu sem kom þjóðinni á hausinn. Auðvitað vilja Skagamenn ekki þannig bæjarstjóra.

Helga (IP-tala skráð) 26.7.2010 kl. 16:50

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hvað,  eru menn orðnir reiðir fyrirfram á Akranesi ef ske kynni? Þetta kallar maður að mæta vel undirbúinn til leiks.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 26.7.2010 kl. 17:09

3 Smámynd: Björn Birgisson

Var fyrrum borgarstjórinn og þingmaðurinn fyrrverandi, Steinunn Valdís, á meðal umsækjenda? Kannski Gunnar Birgisson líka?

Björn Birgisson, 26.7.2010 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband