3.8.2010 | 17:09
Einelti í sannleiksleitinni?
"Jón Ásgeir segir að verið sé að nota breskt réttarkerfi til að ná fram aðgerðum gegn sér sem myndu ekki standast í nokkru öðru réttarkerfi. Hann hafnar því að hafa reynt að fela eignir."
Svei mér þá alla daga. Jón Ásgeir er í sífellu spurður hvort hann hafi eitthvað misjafnt á samviskunni og hann svarar alltaf af bragði að svo sé ekki, en alltaf heldur spurningaflóðið áfram.
Margoft er spurt um sömu hlutina, aftur og aftur, og alltaf heldur Jón Ásgeir fram sakleysi sínu.
Skyldi hann ekki vera orðinn þreyttur á þessu ástandi?
Af hverju er þetta svona?
Líklega af því að það trúir honum ekki nokkur fjölmiðill. Ekki lesendur þeirra, hlustendur eða áhorfendur. Þannig virðist þetta vera.
Ef Jón Ásgeir er jafn saklaus og hann heldur statt og stöðugt fram, er þetta framferði fjölmiðlanna ekkert annað en argasta einelti við manninn.
Einelti í sannleiksleitinni kannski?
Hvað finnst þér lesandi góður?
Segist ekki hafa falið eignir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ef hann væri saklaus þá væri hann fyrir löngu búinn að láta reyna á málsóknshótanir sínar gagnvart blaðamönnum. Hvað manst þú eftir mörgum meiðyrðamálum frá honum? Hvor er svo sekari/saklausari hann eða Kristín systir hann þegar kemur að undirskriftarfölsuninni umræddu?
Björn (IP-tala skráð) 3.8.2010 kl. 21:37
Hann.
Björn Birgisson, 3.8.2010 kl. 22:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.