Engin ólyfjan í drykkina

Á leiðinni heim úr vinnunni í dag var ég með útvarpið í bílnum stillt á Bylgjuna eins og reyndar oftast. Skemmtistaður nokkur var að auglýsa hvað framundan væri um helgina og ég hrökk dálítið við, enda viðkvæmari sál en góðu hófi gegnir!

Auglýsingin frá skemmtistaðnum á höfuðborgarsvæðinu var einhvern veginn svona:

Konur fá frítt inn og frían drykk til klukkan eitt.

Ég hugsaði með mér að það sem vantaði í auglýsinguna væri þetta:

Athugið! Við blöndum ekki neinni ólyfjan í drykkina!

Eða þetta:

Karlar hér verður fullt af drukknum konum og veiðivon því ágæt!

Mér fannst þetta ósmekkleg auglýsing og líklega er það óttalegur tepruskapur í mér.

Við það verð ég að lifa.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu viss um að þetta hafi ekki verið auglýsing um fyrstu haustréttirnar?

Dóri (IP-tala skráð) 12.8.2010 kl. 18:53

2 Smámynd: Björn Birgisson

Dóri, haustréttir eru fögur arfleifð þess að stunda sauðfjárbúskap hérlendis. Þessi auglýsing hefur enga slíka fegurð og ber ekki annað með sér en lítilsvirðingu. Reyndar er ég hissa á að Femínistar hafi ekki látið í sér heyra. Þeir lesa kannski ekki blogggið mitt eða hlusta á Bylgjuna!

Björn Birgisson, 12.8.2010 kl. 19:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband