Dýrt verkfall?

"Haft var eftir Gísla í fréttum Ríkisútvarpsins, að samkvæmt skýrum dómum Hæstaréttar sé verkfallsvarsla, sem bitni á neytendum, bótaskyld."

Ég geri heldur ráð fyrir því að glöggur maður eins og Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda í landinu, viti hvað hann syngur. Hann færi ekki að vitna til einhvers dóms Hæstaréttar nema vera alveg viss í sinni sök.

Talsmenn Flugfélags Íslands hafa talað um að tjónið hlaupi á einhverjum milljónum og einhverju hafa farþegarnir tapað beint og óbeint.

Fara þá væntanlegar launahækkanir að mestu í að greiða stríðskostnaðinn?


mbl.is Ólögleg verkfallsvarsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ef túlkun og fullyrðingar Gísla eru réttar, þá eru verkföll með öllu óheimil hverju nafni sem þau nefnast, því útilokað er að verkföll bitni ekki á neytendum í einu eða öðru formi. Allar tilraunir til að sniðganga verkföll og fara í kringum þau, draga þau aðeins á langinn og gera þau illvígari og dýrari, engin græðir á því og þá síst neytendurnir hans Gísla.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.8.2010 kl. 15:10

2 Smámynd: Björn Birgisson

Verkföll eru bara að verða úrelt, sérstaklega þar sem beitt er einhverskonar þvingunaraðgerðum eins og í þessu tilviki.

Björn Birgisson, 14.8.2010 kl. 15:15

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Er ekki búið að beita öllum nýmóðins aðferðum í þessari deilu án árangurs?  Mönnum hættir til að gleyma því -að sjaldan veldur einn þá tveir deila- , verkfall er ekki bara á ábyrgð þess sem það boðar.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.8.2010 kl. 15:22

4 Smámynd: Björn Birgisson

Hvað sem því líður, þá er þetta fáránlegur tími fyrir verkföll, eins og staða þjóðarinnar er nú.

Björn Birgisson, 14.8.2010 kl. 15:27

5 identicon

Komið þið sælir; Björn Ísfirðingur - og Axel Jóhann Skagstrendingur !

Björn minn !

Ályktanir þínar; gagnvart verkföllum, eru alls ekki, á rökum reistar. Oftsinnis; hafa verkföll verið, einn aðdraganda þjóðfélagsbyltinga, í ýmsum löndum - og það er einmitt ein slík; sem við þörfnumst mjög, hér á Fróni.

Rotin fúlmenni; á valdastólum - eða innan seilingar þeirra, eru að merja samfélag okkar, niður í svaðið, hægt, og bítandi.

Því; gætu verkföll - helzt, allsherjarverkfall, stuðlað að falli illræðis afla, hinna fjögurra spilltu flokka, ágæti drengur.

Með beztu kveðjum; vestur yfir fjallgarð, sem jafnan /

Óskar Helgi 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.8.2010 kl. 16:01

6 Smámynd: Björn Birgisson

Lengi lifi byltingin!

Björn Birgisson, 14.8.2010 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband