Opið bréf til Orðunefndar sem starfar á vegum Forseta Íslands

Herra Ólafur Skúlason, fyrrum biskup, en eilífur meintur níðingur, hefur með ýmsu móti undirstrikað þann dóm sem þjóðin fellir nú yfir honum. Eitt af því er ásælni í endalausar viðurkenningar. Hann vissi vel að Fálkaorða Íslendinga var fimmskipt og metnaður hans til að hljóta allar fimm orðurnar, þrátt fyrir myrkrið sem hann lifði í og myrkrið sem hann olli öðrum, sýnir í raun betur siðspilltan huga hans, en það sem hann gerði öðru fólki, að meðtalinni dóttur sinni.

Orðunefnd
Sóleyjargata 1
101 Reykjavík

Orðunefnd skipa eftirfarandi:

Ólafur G. Einarsson, fyrrv. ráðherra og fyrrv. forseti Alþingis, formaður orðunefndar
Jón Helgason, fyrrv. ráðherra
Rakel Olsen, framkvæmdastjóri
Ólafur Egilsson, fyrrv. sendiherra
Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður UNICEF
Örnólfur Thorsson, orðuritari

Á síðunni www.forseti.is má lesa þetta um hlutverk Orðunefndar:

"Öllum er frjálst að tilnefna einstaklinga sem þeir telja verðuga orðuþega. Sérstök nefnd, orðunefnd, fjallar um tilnefningar til orðunnar og gerir tillögur til forseta um hverja skuli sæma henni. Nánari upplýsingar um starfsemi orðunefndar veitir orðuritari og hann veitir einnig viðtöku tillögum um orðuveitingar. Orðuritari er nú ávallt starfandi forsetaritari.
Tillögur með tilnefningum verða að berast með formlegum hætti, skriflegar og undirritaðar. Þar skal rekja æviatriði þess sem tilnefndur er og greina frá því starfi eða framlagi til samfélagsins sem talið er að sé þess eðlis að heiðra beri viðkomandi fyrir það með fálkaorðunni. Fleiri en einn geta undirritað tilnefningarbréf en aðalreglan er að undirskrift eins nægir. Orðunefnd berast á hverju ári um 80-100 tilnefningar. Við andlát þess er fálkaorðuna hefur hlotið ber erfingjum hans að skila orðuritara orðunni aftur."

Í beinu framhaldi af þessum texta spyr ég Orðunefndina, hér á opinberum vettvangi og mun senda formanni hennar afrit af spurningunni, svo hann geti ekki skýlt sér á bak við að lesa ekki síðuna mína, sem hann auðvitað hlýtur að gera! Spurningin er einföld. Hún er þessi:

Hver eða hverjir, og á hvaða tíma, mæltu með því að Herra Ólafur Skúlason, fyrrum biskup, hlyti fjórar af fimm mögulegum Fálkaorðum lýðveldisins Íslands?

Þessu ætti að vera auðvelt að svara og ég bíð svarsins spenntur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rauða Ljónið

Sæll. Björn gott framtak ég bíð líka.

Kv. Sigurjón

Rauða Ljónið, 27.8.2010 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband