Ísland, nei takk

Ísland er ekki einvörðungu eyja vegna legu landsins í Atlantshafinu. Landið er líka illa þokkuð eyja í fjármálaheimi Vesturlanda.

Þýskaland mun vera það ríki í Evrópu sem mesta getu hefur til að lána til stórra framkvæmda. Á bæjarstjórnarfundi í Hafnarfirði í dag kom fram að bærinn hefði lengi átt viðskipti við þýskan banka, ekki hvað síst vegna Hafnarfjarðarhafnar. Fulltrúar bæjarins áttu nýverið í viðræðum við bankann um endurfjármögnun eða framlengingu lána.

Svarið sem þeir fengu var kurteislegt, en ákaflega skýrt.

Við viljum ekki eiga nein lánaviðskipti við Ísland, ekki Hafnarfjörð sérstaklega, heldur allt Ísland.

Margir þýskir bankar fóru illa út úr íslenska bankahruninu.

Nú sjá þeir bara rautt þegar minnst er á Ísland.

Nú eru margir að kalla eftir stórum framkvæmdum til að örva atvinnulífið.

Hvar eigum við að fá lán? Vill nokkur lána okkur?

PS. Taktu þátt í könnuninni hér til vinstri! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér skilst að fyrirtækið Kredia.is láni svona skyndi- og neyðarlán. Það gæti alla vega verið byrjunin.

Hólímólí (IP-tala skráð) 1.9.2010 kl. 17:23

2 Smámynd: Björn Birgisson

Jú, jú, það munar um hverja krónu!

Björn Birgisson, 1.9.2010 kl. 17:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband