8.9.2010 | 22:01
Er 55% klámhundur að rústa öllum þurrskreytingum þessa lands?
"Og einkunnarorð hans eru, auðvitað, gegnsæ spilling: Við ætlum ekkert að fela spillinguna."
Spurður um netnotkun. Aðallega klám, sagði Jón Gnarr og hló, eins og honum einum er lagið. Ekki veit ég hvort hann hló á frönsku eða ensku að þessu sinni.
Það er ég viss um að fjölmargir, sem nú ná ekki upp í nefið á sér fyrir heilagri vandlætingu, horfa meira á klám en borgarstjórinn og klæmast almennt meira í sínu lífi og með sitt líf.
Stjórnmálin hafa til dæmis verið eitt allherjar klámhögg í áratugi.
Nú vil ég fá nýja könnun á stuðningi við Jón Gnarr borgarstjóra.
Ætli Gnarrinn sé ekki rokinn úr 40% upp í 55% í vinsældum við þessa játningu sína?
Í leiðinni væri kjörið að kanna hve mikið fylgi Sóley Tómasdóttir hefur.
Einhver nefndi að 2% væri ríflega áætlað.
Svo væri gaman að kanna hvort æska þessa lands, á aldrinum 15-85 ára, sé ekki öll límd við klámsíðurnar eftir allar áhyggjur Sollu Tomm þar um, sem hún hefur rækilega kynnt í dag!
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið var inndælt að Sóley fékk bein til að naga, hún hefur verið svo rotinnpúrruleg undanfarið, grey tíkin.
Það er best að kíkja á rásir 90 og 91 á fjölvarpinu í kvöld, hressandi efni eftir kl 10.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 8.9.2010 kl. 22:26
Alltaf fer ég að sofa um 10 leytið og missi af öllu! Animal Planet og öllu hinu!
Björn Birgisson, 8.9.2010 kl. 22:31
Maður bíður bar þar til undur lok desember, þá verður nú fjör í fjárhúsunum!
Gunnar Heiðarsson, 8.9.2010 kl. 22:39
Gunnar Heiðarsson, innlit þitt minnir mig á sögu sem allir Íslendingar hafa heyrt 18 sinnum og flestir gleymt 17 sinnum. Læt flakka:
Afdalaprestur spurði í messu hvort safnaðarbörnin hefðu séð eða verið með álfi, eftir eldheita predikun um hreina trú, þar sem hann fullvissaði sóknarbörnin um að það væru engir álfar til.
Jón gamli í Valhöll, farinn að heyra illa, rétti upp aðra höndina.
"Hefur þú verið með álfi Jón minn"?
"Sagðirðu ekki kálfi, séra minn"?
Björn Birgisson, 8.9.2010 kl. 22:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.