16.9.2010 | 22:49
Dagur íslenskrar náttúru og Ómar Ragnarsson
"Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, lýsti í dag vilja til að gera daginn í dag, 16. september, að degi íslenskrar náttúru til heiðurs Ómari Ragnarssyni, sem er sjötugur í dag."
Snilldartillaga. Ómar Ragnarsson á svo sannarlega skilið að hljóta þessa vegsemd. Ekki síður á náttúra okkar fagra lands skilið að henni sé helgaður einn fallegur haustdagur, þótt allir dagar séu reyndar hennar dagar og við mannfólkið einungis gestir þessarar óblíðu en fögru ómálga náttúru, sem aldrei getur borið hönd fyrir höfuð sér, vilji menn misnota hana.
Náttúran minnir þó alltaf á sig og gefur athöfnum okkar mannanna langt nef. Fyllir Landeyjahöfn af sandi og breytir fyrirætlunum snjöllustu verkfræðinga í sandkassaleik. Innsiglar svo boðskapinn með eldgosi í Eyjafjallajökli og setur Kötlu jafnframt í biðstöðu.
Ómar Ragnarsson, hjartanlega til hamingju með tugina sjö.
Það er stolt sérhvers Íslendings að vera samlandi þinn.
Afmælisdagur Ómars verði dagur íslenskrar náttúru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hjartanlega sammála.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.9.2010 kl. 23:55
Axel Jóhann, takk fyrir þitt góða innnlit.
Björn Birgisson, 17.9.2010 kl. 00:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.