23.9.2010 | 14:36
41 þúsund milljónir
"Rio Tinto Alcan mun verja 347 milljónum Bandaríkjadala, eða sem nemur 40,6 milljörðum íslenskra króna, til að uppfæra búnað og auka framleiðslugetu álversins í Straumsvík.........."
Vita Svandís Svavarsdóttir og samtökin Sól í Straumi af þessu?
41 milljarður í framkvæmdir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ætli það sé ekki bara best að vera ekkert að segja henni frá þessu.
Bjarni (IP-tala skráð) 23.9.2010 kl. 14:53
Ógn við stefnu stjórnarinnar
Ólafur Ingi Hrólfsson, 23.9.2010 kl. 15:13
Viðbjóðslegt glæpafyrirtæki er að reyna stækka hlut sinn í orkulindum Íslendinga. Er ástæða til þess að fagna?
Guðmundur Guðmundsson, 23.9.2010 kl. 21:45
Guðmundur, ég held að fleiri fagni þessum framkvæmdum en hitt. Þú segir:
"Viðbjóðslegt glæpafyrirtæki er að reyna stækka hlut sinn í orkulindum Íslendinga. Er ástæða til þess að fagna?"
Rio Tinto Alcan er ekki að stækka sinn hlut í orkulindum Íslendinga. Hann er enginn og getur því ekki stækkað með þessum samningi.
Þeir eru að semja um að kaupa meiri orku af Íslendingum.
Á því er mikill munur.
Björn Birgisson, 23.9.2010 kl. 21:54
Sælir þetta er nokkuð góðar fréttir en um leið ættum við að afskrifa Helguvík!
Sigurður Haraldsson, 23.9.2010 kl. 23:29
Sigurður, afskrifa Helguvík! Með hvaða rökum?
Björn Birgisson, 24.9.2010 kl. 00:05
Álbræðsluiðnaðurinn kann að verða okkur endaslepptur eins og síldin forðum: Um leið og Bandaríkjamenn taka upp endurvinnslu á einnota álumbúðum þá jafnast það við framleiðslu allra álvera í Norður Evrópu!
Framleiðsla hrááls er mjög umhverfisspillandi og endurvinnsla stuðlar einnig að betri nýtingu ekki aðeins hráefna heldur einnig orku. Talið er að einungis 5% þurfi að bræða endurnýtanlegt ál miðað við hráál. Það er því ekki spurning um hvort heldur hvenær.
Fyrir nokkru lokaði Alkóa 2 gömlum álbræðslum á Ítalíu. Þá hafði fyrirtækið nýhafið starfsemi á Austfjörðum. Hvenær megum við vænta þess að álbræðslum verði lokað á Íslandi? Það kann að koma að því ef stjórnendum telja hagnaðarvonin verði annars staðar.
Er ekki hyggilegt að byggja upp atvinnulíf á meiri fjölbreytni að aðeins þessu?
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 24.9.2010 kl. 08:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.