Þráinn skundar á Þingvöll

"Þráinn Bertelsson, þingmaður VG, mun taka sæti í Þingvallanefnd, en tilkynnt var á Alþingi í kvöld að samflokksmaður hans, Þuríður Backman, hefði sagt af sér."

Af ýmsum ástæðum held ég að Þráinn Bertelsson verði frábær fulltrúi í Þingvallanefnd. Meira að segja betri þar en á Alþingi, en kasta þó engri rýrð á störf hans þar.

Skil hins vegar ekki af hverju alþingismenn þurfa endilega að sitja í þessari ágætu nefnd!


mbl.is Þráinn í Þingvallanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Það er lögbundið að alþingismenn sitji í Þingvallanefnd. Þannig að það þarf þá að breyta lögunum ef fólk vill hafa annan hátt á því máli.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 5.10.2010 kl. 21:52

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Ég er sammála þér Björn, ég tel að Þráinn verði góður í þessari nefnd. Ég hef alla tíð borið virðingu fyrir Þránni Bertelsyni en störf hans á þingi hafa valdið mér vonbrigðum. Hann er ekki á heimavelli þar, listamenn eru kannski ekki bestir í pólitík.

Gunnar Heiðarsson, 5.10.2010 kl. 21:56

3 Smámynd: Björn Birgisson

Þorsteinn, takk fyrir þitt góða innlit. Þá þarf að breyta þeim lögum. Margt gott fólk, utanþings, er betur fært um að sitja í Þingvallanefnd, en blessaðir þingmennirnir okkar, þótt margir séu þeir ágætir.

Björn Birgisson, 5.10.2010 kl. 22:53

4 Smámynd: Björn Birgisson

Gunnar Heiðarsson, það er ómögulegt að leggja nokkurn dóm á störf Þráins á hinu háa Alþingi. Hann fór þangað inn á ákveðnum grundvelli, en sá grundvöllur hvarf. Af bóklestri tel ég að Þráinn sé á heimavelli á Þingvöllum og því fínn fulltrúi í Þingvallanefnd og óska honum alls hins besta í störfum sínum þar. Þakka þér innlitið.

Björn Birgisson, 5.10.2010 kl. 22:59

5 identicon

Þráinn á ekki að vera í neinni nefnd því hann er svikari.  Sveik kjósendur sína með því að ganga í VG. Eða var það partur af samkomulagi hans við sína kjósendur.  Held ekki.

jonas (IP-tala skráð) 5.10.2010 kl. 23:04

6 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Það verður ábyggilega bráðskemmtilegt fyrir hina sem sitja í Þingvallanefnd að fá Þráin í nefndina. Hann mun ábyggilega lífga upp á hana.

Eftir að barrtré voru söguð niður í einhverju bríaríi í stórum stíl hérna um árið hefur grágæsum stórfjölgað í þinghelginni. Er nú svo komið að sökum þess að þær eiga til að skilja stykkin sín hvar sem er án þess að gæta að Þingvellir eru sagðir vera einna merkastur staðu á Íslandi, þá hefur Þingvallakirkja verið lokuð fyrir túristum í allt sumar.

Ástæðan er sú að töluvert hefur borið á því að gæsaskítur hafi þá náttúru að þegar á er stigið, festist hann undir skótau flestra þeirra sem ganga um göngustíga á Þingvelli og berst jafnvel inn í kirkjuna. Hefur starfsfólk haft ærna vinnu við þrif af þessum sökum og þar sem nauðsyn ber að skera niður öll óþörf útgjöld í rekstri opinberra stofnana á borð við þjóðgarðinn og þar með kirkjuna, er auðveldara að loka kirkjunni fyrir forvitnum útlendingum sem Íslendingum sem hvort sem er kunna ekki að koma í veg fyrir að þessi ófögnuður frá gæsunum berist inn í kirkjuna enda á hann ekkert brýnt erindi þangað.

Kannski mætti planta aftur barrtrjám á Þingvelli svo koma mætti í veg fyrir óþarflega mikið magn af gæsaskít sem nóg virðist vera nú af í þinghelginni og kringum kirkjuna.

Vonandi rekst okkar bráðskemmtilegi Þráinn á þessar línur.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 5.10.2010 kl. 23:09

7 Smámynd: Björn Birgisson

Mosi, þakka þér þetta ágæta innlit. Menn eins og þú eru alltaf ágætt krydd í tilveruna.

Björn Birgisson, 5.10.2010 kl. 23:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband