10.10.2010 | 17:31
Enginn á afturkvæmt úr feigðarósnum
"Víkurfréttir greina frá því á fréttavef sínum að Ögmundur Jónasson, dómsmálaráðherra, hafi blundað á borgarafundi í Reykjanesbæ."
Það kemur fyrir á bestu bæjum að höfgi sígi á menn þegar leiðindin gerast áleitin og auðvitað er besta leiðin til að forðast þau að bregða sér í draumheima. Ætla rétt að vona að Ögmundur hafi séð einhverjar fallegar myndir í svefnrofanum!
Hins vegar er þessi stutti blundur ráðherrans algjörlega lýsandi og táknrænn fyrir fyrir aðkomu ríkisvaldsins að atvinnumálum á Suðurnesjum.
Þar hafa flestir ráðamenn því miður flotið steinsofandi að feigðarósi og eru á góðri leið með að sturta þúsundum Suðurnesjamanna með sér í ósinn þann illræmda, sem enginn á afturkvæmt úr.
Dottaði á borgarafundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er stórfrétt.. Ögmundur syfjaður.. Hvað næst ? Steingrímur hnerraði...
hilmar jónsson, 10.10.2010 kl. 17:50
Er hann kvefaður karlinn?
Björn Birgisson, 10.10.2010 kl. 17:51
Björn, hefur þú heyrt talað um kæfisvefn ?
Aðalsteinn Agnarsson, 10.10.2010 kl. 20:00
Ríkisstjórnin í hnotskurn?
Heimir Lárusson Fjeldsted, 10.10.2010 kl. 20:23
Aðalsteinn, konan mín þekkir kæfisvefn ágætlega! Hnippir þá í mig og rekur mig á hliðina! Ég er stoltur af þér að fara rétt með! Flestir tala um kæfusvefn og ekki bara í sláturtíðinni!
Björn Birgisson, 10.10.2010 kl. 22:43
Heimir, já því miður og afleiðingar margra ára óstjórnunar.
Björn Birgisson, 10.10.2010 kl. 22:46
Sælir fjölmiðlar geta jarðsett ef þeir vilja það þekki ég af eigin raun ef þeim er ekki fylgt eftir og fréttir skoðaðar áður en þær fara frá þeim.
Sigurður Haraldsson, 12.10.2010 kl. 00:38
Björn, lengi má kenna Íhaldinu um;)
Heimir Lárusson Fjeldsted, 12.10.2010 kl. 06:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.