1.11.2010 | 15:13
Ætli almættið hafi verið á tali?
Þegar Geir Haarde bað Guð að blessa Ísland meinti hann það áreiðanlega frá hjartarótum. Ekki verður séð að hann hafi neitt sérstaklega verið bænheyrður af almættinu. Kannski ekki náð almennilegu sambandi.
Svo bað hann samlanda sína að vera ekki að persónugera hrunið.
Ekki virðist hann heldur hafa verið bænheyrður hvað það varðar. Engu er líkara en að kerfið telji Geir einn bera alla sök, undarlegt sem það nú er. Hann á að svara fyrir málefni peningamarkaðssjóðanna, hvað ríkið varðar, og hann verður dreginn fyrir Landsdóm, einn forustumanna landsins, sem teljast verður stórundarleg og ósvífin ákvörðun.
Aðrir stjórnmálamenn eru ekkert í réttarsölunum!
"Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hafði samþykkt að gefa skýrslu sem vitni í máli fólks sem átti inneign í peningamarkaðssjóði Landsbankans gegn ríkinu."
Nú er hann eðlilega hættur við það af því að hann fékk óvænt Landsdómsþvæluna í fangið í millitíðinni.
Landsdómsþvæluna já.
Það minnir mig á það að ég mun aldrei styðja nokkurn þann þingmann sem greiddi þessari vitleysu atkvæði sitt.
Ef til reynir ekki á það, kannski sópar þjóðin þeim öllum undir teppið í næstu kosningum.
Það má hún gera mín vegna.
Ber ekki vitni um neyðarlög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.