Stundum væri gott ef stjórnvöld byggju yfir snilld glæpamannanna!

Íslendingurinn sem framseldur var frá Venesúvela er grunaður um aðild að umfangsmiklu fjársvikamáli, sem er til rannsóknar hjá lögreglu, en talið er að sviknar hafi verið 270 milljónir króna út úr virðisaukaskattskerfinu með aðstoð innherja hjá skattinum, en "störf" hans leiddu til áfallahjálpar fyrir allt starfsfólkið, eins og frægt varð af fréttum!

Ef marka má nýjar og eldri fréttir af þessu mikla fjársvikamáli, þá er það með beina tengingu í eiturlyfjaheiminn. Gríðarlega fjármuni þarf til innkaupa á óþverranum og peningar liggja ekki á lausu út um allar koppagrundir.

Hvað er þá til ráða?

Setjast niður, hugsa og pæla. Koma síðan með ótrúlega snjalla fléttu og hugmynd. Svo sem ekkert síðri fléttu en bankaránin innanfrá, sem rifjuð voru upp í aðgerðum Sérstaks saksóknara í dag!

Auðvitað "Allir vinna" átakið. Virðisaukinn endurgreiddur af allri vinnu iðnaðarmanna. Ekki flókið að falsa nokkra reikninga! Kaupa einn starfsmann hjá skattinum og málið í höfn! Gangverð slíkra skattmanna hefur þó ekki verið gefið upp.

Láta Ríkissjóð Íslands fjármagna viðskiptin!

Ríkissjóður Íslands fjármagnar neyslu og innflutning, á sama tíma og löggæslan er skorin niður!

Þvílík úthugsuð snilld!

Þvílíkt plan!

Sem gekk ágætlega, þar til græðgin varð hinum grunuðu að falli.

(Endurbirt, nokkuð breytt)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Svo satt hjá þér Björn minn1 Hvað skyldi ekki vera búið að fjármagna með þessari aðferð og í hvað mörg ár hefur þetta gengið ?

Eyjólfur Jónsson, 16.11.2010 kl. 21:02

2 Smámynd: Björn Birgisson

Eyjólfur, "Allir vinna" prógrammið er ekki gamalt. Um svindl á öðru veit ég lítið. Veit þó að ef hægt er að svindla á einhverju verða alltaf einhverjir til þess!

Björn Birgisson, 16.11.2010 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 602487

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband