Eru lífeyrissjóðirnir, sem þjóðin á, að beita ríkissjóð, sem þjóðin á, einhverri fjárkúgun?

"Þær stórframkvæmdir sem rætt er um eru breikkun Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar, framkvæmdir við Reykjanesbraut og Vaðlaheiðargöng. Um er að ræða afar stórt verkefni, „Þetta yrði með stærri skuldabréfaútgáfum síðari ára."

So what?

Aðallega fjármagnað með vegatollum, eins og Hvalfjarðargöngin, sem reyndar voru einkaframkvæmd, sem gekk svo vel að nú er rætt um tvöföldun gangnanna á sama hátt. Allir að græða!

100, 200, 300 kall, á bíl eða eitthvað meira! Hvað þarf að ræða svona mikið? Engu er líkara en að menn nenni ekki að landa þessu einfalda verkefni eða gefi sér ekki tíma til þess á meðan þjóðin býður andvaka eftir auknum framkvæmdum!

Eru stjórnendur lífeyrissjóðanna að velta fyrir sér fjárfestingum sínum á sukk og velmektarárunum?

Ætla þeir nú að semja við ríkið þann veg að þeir bæti upp alla vitleysuna í sjálfum sér?

Ríkið innheimtir vegatolla og þekkir umferðarstrauminn ágætlega. 100 kall gerir x upphæð, 200 kall gerir x upphæð, 300 kall gerir x upphæð.

Hvað er um að semja?

Nú, auðvitað vextina. Þeir verða á bilinu 2.5-5%. Það liggur fyrir. Verðtrygging? Auðvitað.

Stundum gleyma Íslendingar því að þeir eiga lífeyrissjóðina, en stjórnendur þeirra eiga ekkert annað en skömmina af því að blóðmjólka þá sjálfum sér til hagsbóta.

Gangi þessir samningar illa má alltaf reka stjórnendur lífeyrissjóðanna.

Hver þarf á því liði að halda eftir allt sem á undan er gengið?

Stjórnendur lífeyrissjóðanna! Semjið í snatri við þjóðina, eða hverfið frá borðinu annars!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband