27.11.2010 | 02:06
Allir sem elska landið sitt mæta á kjörstað!
Ég vil hvetja alla til að taka þátt í kosningunum á morgun. Taka þannig þátt í þeirri viðleitni að gera Stjórnarskrána að þjóðarplaggi, en ekki einhverju einkaplaggi stjórnmálamanna.
Svo verður landið bara eitt kjördæmi á morgun. Það er spennandi!
Ef þátttaka verður góð á morgun mun Alþingi eiga verulega erfitt með að hafna tillögum Stjórnlagaþingsins, en mig grunar að fáeinir þingmenn séu innra með sér ákveðnir í að gera einmitt það.
Hverjir skyldu það vera?
Látið ekki druslugang andstæðinga alvöru lýðveldis á Íslandi hafa áhrif á ykkur!
Mætið og kjósið. Frábært fólk í framboði í hrönnum! Besta fólk Íslands!
Langt um betra fólk en fyrirfinnst á listum flokkanna!
Allir sem elska landið sitt mæta á kjörstað!
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
þetta eru aldeis falleg orð og í tíma töluð Björn, elska skalt þú land þitt og landið elskar þig,,,,,
Ég mæti allavega með minn topp tíu lista, fer ekki lengra.
Guðmundur Júlíusson, 27.11.2010 kl. 02:20
Takk, Guðmundur! Þú stendur þig vel!
Björn Birgisson, 27.11.2010 kl. 02:25
Strákar: Þið vakið alltof lengi..
Megið þið þetta ?
hilmar jónsson, 27.11.2010 kl. 09:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.