27.11.2010 | 14:20
Kommar í hverju horni
Ef það er rétt, sem fram kemur hjá ykkur á netinu, varðandi þessi frumvarpsdrög, þá er þetta bara dæmi um kommúnismann í framkvæmd," sagði Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, í samtali við Morgunblaðið í gær.
Það var ekkert annað! Kommúnismi af hálfu Jóns Bjarnasonar skal þetta heita.
Ég hélt að hið lokaða kerfi væri hálfgerður kommúnismi, sérhannað fyrir fáa útvalda. Fæ ekki betur séð en að Jón Bjarnason sé að auka frelsið til veiða með þessum tillögum sínum. Hleypa fleirum að auðlindinni. Ef það er kommúnismi, þá þarf eitthvað að huga að hugtakafræðunum.
Mér sýnist Jón Bjarnason bara vera að tryggja "rétt einstaklingsins til athafna."
Fjandans kommar allsstaðar!
Í hverju horni!
Kommúnismi í framkvæmd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er nú bara svona með þetta mál Björn minn að þegar eigin kennisetningar eru farnar að bíta frjálshyggjumanninn í fótinn þá ærist hann og æpir: "kommúnismi!"
Mér sýnist Jón minn Bjarna bara vera að tryggja "rétt einstaklingsins til athafna."
Ég hef lengi haft sjálfstæðismenn grunaða um að vilja beina þessu einstaklingsfrelsi til sérvalinna einstaklinga.
Árni Gunnarsson, 27.11.2010 kl. 15:32
Já, þetta er stórmerkilegt, þetta með frelsi einstaklingsins og frekjuna í fólki að vilja taka þátt í frelsinu! Frekjupakk, sem skilur ekki að fyrir löngu er búið að útdeila því frelsi sem var á boðstólum!
Björn Birgisson, 27.11.2010 kl. 17:10
Já, líklega er nú til of mikils mælst að frelsið eigi að vera fyrir alla.
Árni Gunnarsson, 27.11.2010 kl. 19:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.