8.12.2010 | 16:11
Misheppnaður stuðningur
Drullaðu þér héðan út," var á meðal þess sem einn mótmælandi hrópaði nokkrum sinnum þegar Höskuldur hugðist halda áfram að ræða boðaðan niðurskurð í heilbrigðismálum."
Hafi þessi heimsókn á þingpallana átt að vera til stuðnings við níumenningana í málaferlunum gegn þeim, er ansi hætt við að sá stuðningur hafi snúist upp í andhverfu sína.
Dólgsháttur og ofbeldi, hvert sem birtingarform þess er, verður aldrei neinum málstað til framdráttar.
Þetta var því algjörlega misheppnaður stuðningur.
Eru einhver viðurlög við því að trufla þingfundi á þennan hátt?
Þingfundi frestað vegna mótmæla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ætti að vera, ef skríll réðist inní þing í öðrum löndum og hótaði kjörnum fulltrúum þjóðarinnar ofbeldi hefði nú heldur betur verið gripið inní.
Arngrímur Stefánsson, 8.12.2010 kl. 16:27
Já, líklega af vopnuðum vörðum og engin miskunn sýnd!
Björn Birgisson, 8.12.2010 kl. 16:53
Ríkisvald er ofbeldi.
Eign er þjófnaður.
F.V. (IP-tala skráð) 8.12.2010 kl. 17:19
F.V., ef ég kaupi bland í poka fyrir 300 kall og borga samviskusamlega, á ég þá ekki nammið? Er þetta þjófnaður?
Björn Birgisson, 8.12.2010 kl. 17:27
Ja hérna
óheppinn maður eða bara svikinn er hann ..kaupir bland í póka hvernig blanda er þetta allt eins allt ónýtt , róttin , illa lyktaður..
hvað á borða fyrst steingrím (skallgrímur) , jóa klóa , árna pál ( sólbaðdrengurinn) , pétur blöndal , þráinn ....ég bara sé ekki neit nammi ....allt saman sama drasl , sama ógeð , eitur , beiskur , best að drulla þeim í burtu ...jafnvel að sturta þá í wc ...
ekki nema , ekki nema frú margrét ,,frú birgita og herra Pór saari
Babo (IP-tala skráð) 8.12.2010 kl. 17:58
Upphlaupið fyrir 2 árum var ekki til fyrirmyndar en að hafa frumkvæði að því að ákæra níumenningana fyrir landráð, eins og ÁRJ þingforseti gerði, er fyrir neðan allar hellur. Sýnir best í hvaða fílabeinsturni hún lifir.
Að hrauna yfir þingmenn jafngildir sem sagt árás á þingið. Viðurlögin eru að vera dæmdur í 1-16 ára fangelsi fyrir landráð. Að frumkvæði þeirra sem settu landið á hausinn!!
Skrýtið réttlæti það.
Jónas hefur þetta.
Ybbar gogg (IP-tala skráð) 8.12.2010 kl. 20:45
Jónas? Hann er skemmtilegur penni. Væri hægt að nota hann sem ráðherra? Ég held ekki.
Björn Birgisson, 8.12.2010 kl. 21:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.