22.12.2010 | 19:37
Vel skipulögð þjófagengi ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur
"Þjófurinn náði að opna glugga með kúbeini. Hann stal matarpokunum, en í þeim var kjöt og fleira gott í jólamatinn."
Þjófurinn? Þjófarnir? Líklegra.
Ég dreg þá ályktun af fréttum af þessu innbroti að hér hafi erlendir glæpamenn verið á ferli, enda innlendir þjófar ekki hálfdrættingar á við það þrautþjálfaða og skipulagða lið, sem lagt hefur leið sína hingað, gagngert til að stela.
Það var einkum eitt atriði, sem nefnt var í sjónvarpsfréttum, sem rennir stoðum undir þessa ályktun mína og það atriði nefni ég ekki hér.
Stálu frá mæðrastyrksnefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Akkurekki?
Hörður Sigurðsson Diego, 22.12.2010 kl. 21:00
ég giska á að atriðið sem hann vísar til er sú staðreynd að þjófarnir vildu ekki reykta kjötið.
enginn sem ég þekki að baltnesku bergi brotnu borðar okkar reykta hátíðarmat :)
kjartan (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 21:19
Kjartan, þú ert nokkuð heitur!
Björn Birgisson, 22.12.2010 kl. 21:58
En var ekki hangiket í pokunum sem þjófarnir tóku? Þeir hjá mæðrastyrksnefnd sögðu að það hefði verið jólaket í stolnu pokunum og ég tók því sem hangiketi? Og er hangiket ekki reykt?
Nei, hér er greinilega ekki allt sem sýnist.
Hörður Sigurðsson Diego, 22.12.2010 kl. 23:10
Hörður Watson, þú ert enginn Holmes.
Björn Birgisson, 22.12.2010 kl. 23:13
Hvernig haldiði að ástandið verði hér í Mars á næsta ári,en þá er Rúmenía komin í Shengen.
Númi (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 23:21
Víst er ég Holmes. Og gott betur.
Hörður Sigurðsson Diego, 22.12.2010 kl. 23:31
Númi, ég hlakka ekkert sérstaklega til.
Björn Birgisson, 22.12.2010 kl. 23:35
OK, Hörður Watson Holmes Bond. Þú ert flottastur!
Björn Birgisson, 22.12.2010 kl. 23:36
Ég hlakka til að fá Rúmenana. Ekkert gaman að díla alltaf við sömu þjófagengin.
Hörður Sigurðsson Diego, 22.12.2010 kl. 23:59
Þið fáið ekki vinnu við að bera töskur Holmes, hvað þá meira félagar.
Þekki fullt af Íslendingum, af yngri kynslóðinni sem líta ekki við reyktu kjeti, en vilja þess í stað amerískar pakkaflatbökur.
Málið felst í þjóðarkarakternum, það var gengið skipulaga til verks, þetta var eins og hver önnur vinna.
Og íslenskur smákrimmi, sem býr yfir þeim eiginleika, hann myndi frekar ræna forsetann en að ræna mæðrastyrksnefnd. Líklegast vegna þess að menn ræna ekki ömmu sína og slík samtök, nú ef hann er þessi örfáu siðblindu sem fóru ekki úr ránum yfir í bankarán, innanfrá, þá veit hans eins og er, að hann ætti sér aldrei viðreisnar von í undirheimunum með slíkan glæp á bakinu.
Hann yrði kabúd.
Eftir standa illa farnir einstaklingar eftir áratuga dóp og áfengisneyslu. Þeir gætu þetta vissulega, en þá í því ástandi að engum dytti í hug að nota orðið "skipulagður" um verknað þeirra.
Ekki er allt sem sýnist.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 23.12.2010 kl. 09:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.