4.1.2011 | 19:36
Enn mikið svigrúm til skattlagningar hérlendis
Myndin sem dregin er upp af skattahækkunum er stórlega ýkt", segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.
Þetta er rétt hjá Steingrími. Þessar skattahækkanir hafa verið það óverulegar að mikið svigrúm er enn til staðar ef fjölga þarf krónum í ríkiskassanum.
Millistéttin í landinu á fullt af peningum sem allt eins og líklega eru miklu betur komnir í ríkiskassanum.
Áfengi og tóbak er skammarlega ódýrt hérlendis.
Bensín er hér nánast á útsölu alla daga ársins.
Gjöld sem ríkið hirðir við innflutning nýrra bíla eru ekkert annað en brandari.
Tryggingargjaldið á fyrirtækin má stórhækka.
Skattur á fjármagnstekjur er stórlega vannýttur skattstofn.
Erfðafjárskattur sömuleiðis stórlega vannýttur stofn.
Háir vegatollar gætu gefið mjög vel af sér.
Brúartollar eru borðliggjandi góðir fyrir ríkissjóð.
Virðisaukaskattinn á nauðsynjavörur má stórhækka.
Hér hefur aðeins fátt eitt verið nefnt. Tækifærin til skattahækkana eru fjölmörg.
Það þarf bara að hafa útsjónarsemi til að finna þau. Síðan þarf að hafa svolítinn kjark til að koma nauðsynlegum nýjum sköttum og hækkunum á.
Hvernig líst ykkur á súrefnisskatt?
Hefur einhver efni á að borga hann ekki?
Óverulegar skattahækkanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Svo má líka skammta fólki þá fæðu sem það þarf og klæði - þá getur ríkið tekið um 90% af tekjum fólks óhikað, rétt að skilja nóg eftir fyrir rafmagni, hita og bensíni svo fólk komist í og úr vinnu. :-)
Kveðja að norðan.
Arinbjörn Kúld, 4.1.2011 kl. 21:22
Já, Arinbjörn, þær eru margar matarholurnar!
Björn Birgisson, 4.1.2011 kl. 21:25
Eruði ekki að grínast?
Steii (IP-tala skráð) 4.1.2011 kl. 21:28
Grínast? Með svona alvörumál?
Björn Birgisson, 4.1.2011 kl. 21:30
Arinbjörn, þú átt við að ríkið taki 100 % í skatta en Hjálparstofnanir gefa heimilunum mat. Rafmagnið verður tekið af fljótlega en sennilega lafir Hitaveitan.
Einar Guðjónsson, 4.1.2011 kl. 21:32
Það er líka möguleiki Einar, kertaljós og klæðin rauð og allt það :-)
Steii: á þessum ógnar tímum er allt hugsanlegt og stjórnmálamenn, íslenskir sem erlendir telja öllu fórnandi til að greiða skuldir banka og eigenda þeirra.
Kveðja úr hríðinni að norðan.
Arinbjörn Kúld, 4.1.2011 kl. 21:36
Einhverjir ofantalinna skatta eru enn lægri hér en í sumum löndum öðrum.
Svo er eitt bankahrun ekki alveg gratís.
Eigum við ekki að vona að þetta sé tímabundið ástand.
Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 4.1.2011 kl. 21:55
Tímabundið ástand? Er það nú líklegt?
Björn Birgisson, 4.1.2011 kl. 22:13
Hvað er líklegt Björn ?
hilmar jónsson, 4.1.2011 kl. 22:24
Ef ég vissi það myndi ég örugglega ekki þora að segja frá því!
Björn Birgisson, 4.1.2011 kl. 22:26
Það er ekki auðvelt að taka skatt af sem einu sinni hefur verið settur á. Það gildir nefnilega sama um ríkisspenann og gamla góða móðurbrjóstið, það er erfiðara að venja af spenanum (= skera niður) en að venja á hann (= auka kostnað).
Stóra málið er að skattar = völd stjórnmálamanna. Ef þú vilt auka völd þeirra þá skaltu kjósa með skattahækkunum, ef þú vilt minnka þau þá skaltu kjósa gegn skattahækkunum.
Björn (IP-tala skráð) 5.1.2011 kl. 01:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.