Jóhanna Múbarak Sigurðardóttir tekur til hendinni

"Hosni Múbarak, forseti Egyptalands, flutti ávarp í kvöld og lofaði að stuðla að umbótum í landinu. Hann sagðist ekki ætla að fara frá völdum, en sagðist hafa óskað eftir að ríkisstjórnin færi frá völdum. Ný stjórn yrði skipuð á morgun."

Snilld hjá Múbarak! Reka bara stjórnina! Svona eiga stjórnendur að vera! Bregðast við vandanum með stæl. Víkja hvergi, en láta vitleysingjana sem gagnrýna víkja! 

Má ég umorða þetta pínulítið?

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flutti ávarp í kvöld og lofaði að stuðla að umbótum í landinu. Hún sagðist ekki ætla að fara frá völdum, en sagðist hafa óskað eftir algjörri uppstokkun í ríkisstjórninni. Ný stjórn yrði skipuð á morgun.

Eru þá ekki allir ánægðir?


mbl.is Múbarak ætlar ekki að víkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Björn, ég skil þetta þá þannig að þessi samlíking sé á þann veginn að stjórnin sem slík sé fallinn! þú líkir henni við gríska módelið?

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 00:05

2 Smámynd: Hörður Sigurðsson Diego

Björn. Þú verður að vanda þig betur.

Meira að segja Guðmundur Júlíusson er farinn að reyna að skilja hvað þú meinar.

Hörður Sigurðsson Diego, 29.1.2011 kl. 00:12

3 Smámynd: Björn Birgisson

Guðmundur minn, ég var aldrei mikill módel maður. Setti þó saman nokkrar flugvélar, sem brotlentu allar í ruslafötunni fyrir vestan, málaðar og alles.

Mér er annt um Gríska sögu, ekki síður en um hina Egypsku. Um nútíma Grikki hef ég ekki fjallað í færslum mínum. Mig rekur ekki minni til þess. Kannski er ellin að læðast að mér. Veistu betur?

Björn Birgisson, 29.1.2011 kl. 00:26

4 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Gott er það Björn minn góður 

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 00:39

5 Smámynd: Björn Birgisson

Hörður, ég mælist til þess að þú vandir bæði orð þín og framkomu. Gerandi það, mun þér farnast betur, minn kæri! Ég tala af langri reynslu, yfirhlaðinn af kurteisi og manngæsku!

Björn Birgisson, 29.1.2011 kl. 00:45

6 Smámynd: Hörður Sigurðsson Diego

Jamm, ég veit Björn. Enginn kemst með tærnar þar sem þú hefur hælana.

Hörður Sigurðsson Diego, 29.1.2011 kl. 01:17

7 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Hörður, hvaða árás er þetta eiginlenga á mig!!!

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 01:21

8 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

eiginlega á þetta að vera!!

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 01:22

9 Smámynd: Hörður Sigurðsson Diego

Árás? Hvar sérðu árás?

Hörður Sigurðsson Diego, 29.1.2011 kl. 01:23

10 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Nú, þú segir "Meira að segja Guðmundur Júlíusson er farinn að reyna að skilja hvað þú meinar."

virkar eins og þú haldir að meira segja ég fatti hlutinnna!!! 

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 01:39

11 Smámynd: Hörður Sigurðsson Diego

Þetta átti að vera djók. Orðaleikur. Greinilega misheppnað. Biðst afsökunar.

Hörður Sigurðsson Diego, 29.1.2011 kl. 01:43

12 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Ekki málið, skál

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 01:47

13 Smámynd: Björn Birgisson

Svona, svona, börnin mín! Er þetta ekki bara bræðrakærleikur! Þið megið báðir sofa upp í til fóta í kvöld! Málið leyst?

Björn Birgisson, 29.1.2011 kl. 01:48

14 Smámynd: Björn Birgisson

Skál? Ekki ertu að drekka drengurinn minn? Svona bráðungur!

Björn Birgisson, 29.1.2011 kl. 01:49

15 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Samlíkingin er góð, en er einhver sannleiksmoli í þessu?

Bergljót Gunnarsdóttir, 29.1.2011 kl. 01:53

16 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Nei, það er ég ekki að gera!!

En Björn! af hverju ertu  enn vakandi svona gamall sem þú ert? 

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 01:57

17 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Er Bergljót farinn að skipta sér af  þessu?

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 01:58

18 Smámynd: Björn Birgisson

Bergljót, það eina sem þessa síðu hefur aldrei skort er sannleikurinn og heiðarleikinn. Betur væri að svo væri ekki. Þetta eru þungir baggar að bera á öldruðum öxlum. Lygin og svikaplottin virðast ekki beygja nein bök. Hvar fær maður svoleiðis?

Björn Birgisson, 29.1.2011 kl. 02:04

19 Smámynd: Björn Birgisson

Guðmundur minn, ég svaf fram að fermingu, dottaði síðan í fjóra áratugi, á meðan lífið rann fram hjá mér. Því þarf ég að vaka til að sannreyna allt sem ég missti af. Svarar þetta spurningu þinni?

Björn Birgisson, 29.1.2011 kl. 02:10

20 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Bergljót, þú  ert drottnig drauma minna, láttu ekki svæfa þigl

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 02:16

21 Smámynd: Björn Birgisson

Hjúkk! Bara Rómantík.is - 1000 kall, er það mikið fyrir miðlunina?

Björn Birgisson, 29.1.2011 kl. 02:25

22 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

haha, ertu farinn að miðla per ce?

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 02:29

23 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Við Bergljót erum meira virði en þúsundkall kæri vin!!!

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 02:30

24 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Ég býð góða nótt kæri vin,

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 02:39

25 Smámynd: Björn Birgisson

Bergljót er fjársjóður, veit minna um þitt verðgildi. Ætlar þú ekki að kjósa Bláherinn næst. Það hefur slæm áhrif á verðgildið.

Björn Birgisson, 29.1.2011 kl. 02:39

26 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Bjön, jú  víst geri ég það við fyrsta tækifæri, og veit ég ekki um verðgildið þar  sem að ég á engin bref!!

Guðmundur Júlíusson, 29.1.2011 kl. 02:43

27 Smámynd: Björn Birgisson

Sömuleiðis, góða nótt og góða helgi!

Björn Birgisson, 29.1.2011 kl. 02:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 602487

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband