Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar og Bjarna Benediktssonar verður samþykkt samkvæmt nýrri könnun

Nú hefur könnunin mín staðið yfir í rétt rúman sólarhring. Ef eitthvað er að marka niðurstöðuna er morgunljóst að stefnir í gríðarlega spennandi kosningar um Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar og hluta Sjálfstæðisflokksins, undir forustu formannsins unga og óreynda, Bjarna Benediktssonar.

Ég túlka niðurstöðuna þannig að Sjálfstæðismenn um allt land muni ráða þessu máli. Vilji stjórnarflokkanna er skýr að mestu, en það verða atkvæði Sjálfstæðismanna sem munu ráða úrslitum. Þeirra mun því ábyrgðin vera þegar upp verður staðið. Eðlilega.

Spurt var:

Ætlar þú að samþykkja Icesave frumvarpið í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem framundan er?
Já sögðu 51.7%
Nei sögðu 48.3%
Nákvæmlega 300 höfðu svarað þegar ég klippti á naflastreng könnunarinnar.
Bendi á að þessi könnun var gerð á Moggabloggi, þar sem langflestir hata ríkisstjórnina og allt sem frá henni kemur.
Þessi könnun var gerð í fjandsamlegu umhverfi og því ber að líta á úrslit hennar sem sigur þeirra sem vilja segja JÁ við samningunum. Engan stórsigur þó.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég gat ekki kosið klukkan tvö í dag.

marat (IP-tala skráð) 23.2.2011 kl. 00:41

2 Smámynd: Björn Birgisson

Því ekki, marat?

Björn Birgisson, 23.2.2011 kl. 00:44

3 identicon

Ég kaus á minni tölvu kl c.a 10 í gærköldi og konan kaus á fartölvunni sinni um svipað leyti. Engin vandamál að kjósa.

Moppinn (IP-tala skráð) 23.2.2011 kl. 06:28

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ég vissi ekkert af þessu, hér er mitt mótatkvæði!

Áttu í alvöru bara einn bloggvin – hann Snjólf?!

Vona að þú sért hress og kátur, svo breytist það væntanlega í apríl!

Annars hef ég ekkert á móti þér, Björn minn.

Ég var í langvinnri, þrálátri tölvubilun – nú líður henni betur. Vona bara að ég lendi ekki í einhverju eilífu snakki út af þessari einu saklausu aths.!

Jón Valur Jensson, 23.2.2011 kl. 06:29

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Og lestu nú vel Krist.bloggið: HÉR færðu sjokk!

Jón Valur Jensson, 23.2.2011 kl. 06:31

6 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Var Guðsmaðurinn að bjóða þér bloggvináttu Björn, eða var hann bara að hæðast að þér á sinn einstaka kristilega hátt?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.2.2011 kl. 07:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband