24.2.2011 | 23:43
Kennitölur í gámavís
"Hátt í 20 fyrirtæki sem nýir eigendur Eyrarodda á Flateyri hafa stýrt, hafa orðið gjaldþrota, að því er kom fram í fréttum Sjónvarpsins í kvöld. Þá hefur annar eigendinn hlotið dóm fyrir stórfellt brot á fiskveiðilöggjöfinni."
Fínt.
Það eru svona menn sem halda öllu gangandi á Íslandi.
Stórhuga menn, sem kunna ekkert með fjármuni að fara en vilja vel. Oftast.
20 fyrirtæki í gjaldþrot. Ekki er það nú mikið. Hefðu getað verið 200. Kannski 400 gjaldþrot!
Nýja Ísland þarf á svona stórhuga mönnum að halda.
Mönnum sem eiga kennitölur í möppum, ef ekki í gámum.
Íslandi allt.
Sérstaklega Flateyri.
Mörg gjaldþrot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
það er nú aldeilis ágætt að þeir nýju voru ekki "bankaeigendur" (ræningjar) sem bara afskrifa skuldir sínar sjálfir og eru með "flekklausan" feril, þótt þeir hafi aldrei dýft hendi í kalt vatn?
þessir gjaldþrota hafa líklega verið að keppa við bankamafíuna og tapað, eðlilega. það getur enginn heiðarlegur maður keppt endalaust við bankamafíu.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 25.2.2011 kl. 00:10
Kennitölur í gámavís,,ritar þú. Þá ætla ég að vona að það sé frekar 20 feta gámur frekar en 40 feta gámur.
Númi (IP-tala skráð) 25.2.2011 kl. 00:12
Anna Sigríður, Veni, vidi, vici og svo slitnaði rófan!
Björn Birgisson, 25.2.2011 kl. 00:17
Það er auðvitað okkur öllum ljóst að fiskveiðistjórnunarkerfið er ekki löglegt, þess vegna er fínt ef hann hefur fengið dóm fyrir að veiða án aflaheimilda. Þetta er hetja.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 25.2.2011 kl. 01:19
Já Stefán Júlíusson Ráðherrabróðir, þetta er mjög djúpþenkjandi skoðun hjá þér.
Númi (IP-tala skráð) 25.2.2011 kl. 08:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.