25.2.2011 | 18:58
Heilsufar þjóðarinnar og norræna velferðarstjórnin
Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að inniliggjandi sjúklingum hafi að meðaltali fækkað um 4,4%, legum um 5,1% og legudögum um 4,4%. Sjúkrahúslega hafi styst um 3,6% að meðaltali og sé nú 6,7 dagar.
Skurðaðgerðum hafi fækkað um 1,9%, fæðingum um 2,3% og komum á allar bráðamóttökur spítalans um 3,2%.
Á maður að gleðjast eða hryggjast yfir þessum tölum?
Benda þær til þess að heilsufar þjóðarinnar fari skánandi þrátt fyrir allt sem gengið hefur á?
Benda þær kannski til þess að sárlasið fólk veigri sér við að hafa samband við lækna og sjúkrahús?
Er það norræna velferðarstjórnin sem hefur þessi góðu/slæmu áhrif á mannskapinn?
Komum fækkaði um 1,2% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sé ekkert annað í stöðunni en að þetta séu jákvæð áhrif okkar yndislegu norrænu velferðarstjórnar...
itg (IP-tala skráð) 25.2.2011 kl. 19:29
Jæja?
Björn Birgisson, 25.2.2011 kl. 19:46
Björn" Ég hef heyrt um marga sem ekki fara á sjúkrahús, og ekki til læknis. Og það virðast aðallega vera 2 ástæður sem mér finnst mest áberandi, en það er hræðsla við mistök á spítölum vegna fólks og fjárskorts! Og svo er mikið af fólki sem hefur ekki efni á að fara á sjúkrahús eða til læknis og á ekki fyrir lyfjum. Þetta hefði þurft að laga ef hægt er!!
Eyjólfur G Svavarsson, 26.2.2011 kl. 20:38
OK, Eyjólfur minn, ég redda þessu eftir helgina! Hvað ertu að slæpast inni á "eldgömlum" færslum? Er svona gaman?
Björn Birgisson, 26.2.2011 kl. 20:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.