Er kosningabandalag rétta leiðin?

Það er augljóst að stjórnmálin hérlendis eru í ógöngum. Hver höndin uppi á móti annarri. Öll samvinna flokkanna og umburðarlyndi þeirra í millum í sögulegu lágmarki.

Ég spurði í könnun hvernig ríkisstjórn menn vildu fá að afloknum næstu kosningum.

Aðeins 17,7% vildu stjórn VG og Samfylkingar, sem teljast verður falleinkunn.

Aðeins 12,9% vildu fá stærstu flokkana, Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu saman í stjórn.

Aðeins 20,2% vildu fá Framsókn og Sjálfstæðisflokkinn saman að nýju.

Aðrir valkostir í flokkasamsetningu fengu nánast ekkert fylgi.

Einn valkostur fékk þó ágætan stuðning þátttakenda.

Eitthvað allt annað!

Það krossuðu 34,7% við þann valmöguleika!

Það er greinilega mikið og gott pláss fyrir nýja flokka og ný framboð á Íslandi.

Annað.

Það hugsuðu margir Sjálfstæðisflokknum þegjandi þörfina í síðustu kosningum og sendu hann inn á Alþingi með aðeins 16 þingmenn, sem er sögulegt lágmark. Sá 16. sullaðist inn með morgunkaffinu eftir langa kosninganótt!

Nú mælist sá flokkur með rúmlega 30% fylgi.

Það þýðir að aðrir hafi tæplega 70% fylgi.

Það væri hægur vandinn fyrir þessi 70% að mynda með sér kosningabandalag, ef virkilega er vilji til þess að framlengja skilaboðin sem kjósendur sendu Sjálfstæðisflokknum í síðustu kosningum.

Annað eins hefur nú gerst.

Ekki er þó líklegt að það gerist, en hafa ber í huga að í stjórnmálum er flest mögulegt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband