18.3.2011 | 15:25
Spurning til umsjónarmanna Moggabloggsins
Mér finnst sem dregið hafi verulega úr allri umferð um Moggabloggið. Hvað segja aðrir bloggarar um það? Hvað segja umsjónarmenn Moggabloggsins um það?
Mig langar að leggja spurningu fyrir umsjónarmenn Moggabloggsins.
Af hverju er verið að fela INNGANGINN í þennan bloggheim neðarlega á forsíðunni? Er það kannski vísvitandi gert til að draga úr umferðinni?
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Tek heilshugar undir þessar spurningar og skora á umsjónarmenn Bloggsins til þess að svara, bæði hér í athugsemdum á þinni síðu og helst á einhverjum áberandi stað á forsíðunni einnig.
Axel Jóhann Axelsson, 18.3.2011 kl. 16:17
Sammála þeir hafa verið kerfisbundið að reyna að fela bloggið.
Óðinn Þórisson, 18.3.2011 kl. 16:56
Óðinn minn, eru þeir að fela mig og þig?
Björn Birgisson, 18.3.2011 kl. 16:59
Axel Jóhann, ég sendi þetta líka í tölvupósti til Árna Matthíassonar. Hann er vanur að bregðast fljótt og vel við mínum fyrirspurnum.
Björn Birgisson, 18.3.2011 kl. 17:02
Björn.
Af hverju heldur þú að Bjarni hafi svikið?????
Og Lárus Blöndal, ekki Guðmundur Óla, eða Þórólfur hárprúði, hafi mælt með svikunum?????
Vegna þess að guð sé íhald????
Eða vegna þess að hagsmunir íhaldsins kröfðust þessa svika?????
Davíð kallinn er eyland, sá eini sem fólk þekkir sem segir Nei við ICEsave.
En Björn, þú ert í stríði við fortíðina, ég er í stríði um framtíð drengjanna minna.
Og þú munt kommentera ???? !!!!!!!!!!????
En á meðan þú finnur okkar sameiginlega flöt, þá skaltu spá í af hverju auðvaldið kæfir bloggið mitt, og þitt.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 18.3.2011 kl. 17:15
Ómar, ég segi nú alveg eins og er. Ég botna lítið í innlegginu þínu!
Björn Birgisson, 18.3.2011 kl. 17:28
Ég varla heldur, minnir samt að ég hafi haft það í huga að elítan vill Já við ICEsave, en hún lætur Dabba greyið fá að sprikla í friði, og enginn les.
Og út frá þeirri hugsun tók ég Konfíus á leggið., Kannski vegna þess að ég segi eins og þú, þetta er ekki vinnunnar virði.
Straumurinn fer fram hjá okkur Björn.
Og það kemur Árna Matt ekkert við. En hann var góður í að kynna Arnald.
Ég veit ekki um þig Björn, en ég á erfitt með að þrauka til 7. apríl.
Það er enginn húmor fólginn í því að rífast við sjálfan sig.
En burt séð frá því, þá spái ég ykkur góðu gengi. Hef ekki hugmynd, en hef fíling fyrir þinni spá.
Svo held ég alltaf með landsbyggðinni.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 18.3.2011 kl. 18:07
Björn - góð spuring ? aðsóknin að mínu bloggi er ekki það mikil að það sé einhver ástæða til að fela hana
Óðinn Þórisson, 18.3.2011 kl. 18:40
Óðinn, ég er viss um að Mogginn elskar bloggið þitt! Mitt kannski eitthvað minna, en Mogganum þykir örugglega vænt um það! Eða hvað?
Björn Birgisson, 18.3.2011 kl. 18:48
Björn - ég ef það ekki að Mogganum þyki jafnvænt um okkar báða
Óðinn Þórisson, 18.3.2011 kl. 19:24
Segjum það bara vera svo!
Björn Birgisson, 18.3.2011 kl. 19:34
þetta er sennilega bara ákvörðun manna sem sita á skrifstofu og og taka ákvarðanir án þess að gera sér grein fyrir því hvað þetta þýðir, svipað og blýantsnagandi ríkistarfsmenn taka ákvarðanir eins og það að banna að formerkja álegg og brátt aðrar vörur eins og kjúklinga og reyktan lax og fl, þeir halda að þeir séu að hjálpa neytendum!!!!
Guðmundur Júlíusson, 18.3.2011 kl. 19:45
Guðmundur, skynjar þú þessa fækkun, þessa minnkandi umferð, eins og við hér að ofan virðumst vera sammála um?
Björn Birgisson, 18.3.2011 kl. 19:54
Já, svo sannarlega geri ég það Björn
Gudmundur Júlíusson (IP-tala skráð) 18.3.2011 kl. 22:57
Guðmundur, veistu hvað veldur?
Björn Birgisson, 18.3.2011 kl. 23:04
Ágætu vinir, látið ykkur ekki bregða þótt ég endurbirti þessa færslu. Ég vil fá svör.
Björn Birgisson, 18.3.2011 kl. 23:24
Það virðist sem að stjórnendur bloggsins séu meðvitað að koma þessu bloggi smátt og smátt út af kortinu, á eins hljóðlegan hátt og þeir halda að sé sæmilegur þeim.
Eins og ég sagði hér að ofan en með þeim formerkjum að þeir eru sennilega búnir að taka ákvörðun um að hætta með bloggið, en það gerist ekki snögglega heldur smátt og smátt, þess vegna færa þeir auglýsingamerki bloggsins alltaf fjær og fjær aðalsíðu.
Ég veit ekki hvaða aðra skýringu á að gefa á þessu Björn!
Guðmundur Júlíusson, 18.3.2011 kl. 23:58
Bloggið virðist vera dulítið sjálfstæð eining innan MBL.is. Svo sjálfstæð að stjórnendurnir hafa fengið næði til að fæla frá skemmtilega bloggara með karakter. Líkur sækir líkan heim og kannski vilja stjórnendurnir hafa lyddur eins og sjálfa sig við bloggskrifin.
En þetta er allt í himnalagi enda bara buisness. Bloggarar fara, traffíkin minnkar og teljararnir eru ávísun á minni auglýsingatekjur og það fatta eigendur MBL, en kannski of seint.
Böðvar (IP-tala skráð) 19.3.2011 kl. 01:24
Böðvar, þakka þér innlitið. Verð því miður að taka undir þetta innlit þitt. Þú hallar hér engu röngu orði, en sérð þessa þróun með réttum gleraugum.
Björn Birgisson, 19.3.2011 kl. 01:49
Guðmundur, þakka þér þína skýringu í #17. Hún virðist rökrétt.
Björn Birgisson, 19.3.2011 kl. 01:53
Tek undir þetta og skora jafnframt á umsjónarmenn að svara spurningunni.
Ef þetta er staðreynd að þeir séu að draga úr þessu smátt og smátt, hvert skal þá halda strákar?
Bergljót Gunnarsdóttir, 19.3.2011 kl. 02:02
Bergljót mín, sjáum aðeins til, ég er að leita svara. Verði þau engin, þá er svarið við þinni spurningu augljóst:
Héðan!
Ég fyrir mína parta veit að mér standa opnar dyr á öðrum miðlum!
Björn Birgisson, 19.3.2011 kl. 02:20
Nú?? ekki standa mér neinar dyr opnar sem ég veit um , viltu opna fyrir mér???
Guðmundur Júlíusson, 19.3.2011 kl. 02:34
Guðmundur minn, hver er sinnar gæfu smiður!
Björn Birgisson, 19.3.2011 kl. 02:47
Já, og friður sé með yður!
Guðmundur Júlíusson, 19.3.2011 kl. 03:12
Eftir ekki svo langan tíma verða sérfræðingar Vantrúar í mannfyrirlitningu þeir einu sem nenna að blogga hér og það er svosem ágætt að óþverri sé einangraður svo aðrir geti forðast hann.
Til hamingju MBL
Aldís (IP-tala skráð) 19.3.2011 kl. 08:28
Árni Matthíasson, hefur svarað mér fyrir hönd blog.is. Hann segir meðal annars í svari sínu, sem ég þakka honum kærlega fyrir:
"Það er ekkert leyndarmál að við erum ekki sátt við það hvar bloggið er á síðunni sem stendur og ákváðum að færa það ofar á síðunni að nýju og gera meira áberandi. Það hefur þó ekki unnist tími til að hrinda því í framkvæmd, enda eru ýmis verk óunnin í sambandi við útlitsbreytingarnar, til að mynda undirvefir sem við eigum eftir að breyta og erum að vinna í sem stendur. Færsla á blogginu er þó á verkefnalistanum og verður vonandi klárað á næstu dögum."
Björn Birgisson, 19.3.2011 kl. 14:17
Á dauða mínum átti ég von, gott hjá honum. Það er orðið svo óalgengt að menn svari fyrirspurnum að maður verður bara stein standandi hissa þegar einhver lætur svo lítið.
Bergljót Gunnarsdóttir, 19.3.2011 kl. 19:33
Gott framtak hjá þér Björn Birgisson
Guðmundur Júlíusson, 19.3.2011 kl. 20:49
Typical hrokagikkur hann Árni sem svarar ekki neinu nema tilneyddur uppvið vegg. Bloggið væri betra án hans "aðstoðar"
Baldur H (IP-tala skráð) 19.3.2011 kl. 21:15
Baldur H., veit ekki hvernig þú finnur þetta út. Ég er þér ekki sammála. Það væri nær að ráðast gegn reglum blog.is, en einstökum starfsmönnum þess. Reglurnar eru útdauðar risaeðlur úr fortíðinni.
Ég hef í fáein skipti átt í tölvupóstsamskiptum við Árna Matthíasson og hann hefur alltaf svarað mér samviskusamlega og kurteislega. Eins og vera ber þegar finna þarf flöt á úrlausnarefnum.
Björn Birgisson, 19.3.2011 kl. 22:28
Bergljót og Guðmundur, þakka ykkur kærkomin innlitin sem fyrr!
Björn Birgisson, 19.3.2011 kl. 22:29
Þetta er einfaldlega deyjandi vettvangur...
Haraldur Rafn Ingvason, 20.3.2011 kl. 18:10
Haraldur, er það nú ekki fullfast að orði kveðið?
Björn Birgisson, 20.3.2011 kl. 18:13
Þetta er nú bara vegna þess að að moggablogginu eru bara undirmálsmenn, þrællundaðir landráðamenn & eldhúsnöldrarar með klósettburstaívafi.. já og vesalingar með hor og slef.
Sannað, get over it; Alvöru fólk bloggar ekki á miðlum landráðamanna sko, þið munið vonandi að mbl er undir yfirráðum þeirra manna sem rústuðu íslandi
;)
doctore (IP-tala skráð) 21.3.2011 kl. 10:04
doctore, þetta er mjög góð lýsing frá innanbúðarmanni. Þú ert mjög tíður gestur hér á Moggabloggi og skrifar hér heilmikið!
Björn Birgisson, 21.3.2011 kl. 16:20
Einmitt!
Bergljót Gunnarsdóttir, 21.3.2011 kl. 19:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.