Hvað fólki finnst um Landeyjahöfn, niðurstaða könnunar

Landeyjahöfn er mikið í fréttum og verður það vafalítið lengi enn. Þar moka menn sandi í beinni keppni við Atlantshafið og þunga strauma þess með suðurströnd landsins. Einhver sagði að jafn mikill sandur væri þarna og í hálfri Sahara eyðimörkinni - og alltaf bættist við!

Hér koma úrslit könnunar sem ég gerði á síðunni minni um þetta mál:

Var hugmyndin að gerð Landeyjahafnar:

Ágæt sögðu: 16,0%
Nokkuð góð sögðu: 11,7%
Frekar slæm sögðu: 14,9%
Afleit sögðu: 57,4%
100 höfðu svarað þegar ég rauf könnunina.
Samandregið má líka segja þetta svona:
27,7% eru þokkalega ánægð með framkvæmdina, en 72,3% telja hana næstum eða algjörlega misheppnaða.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir sem vilja áreiðanlegar kannanir vita hvert á að snúa sér. En af hverju var könnunin rofin svona fljótt?

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 20.3.2011 kl. 21:50

2 Smámynd: Björn Birgisson

Hrafn Arnarson, því er fljótsvarað. Umferðin hér á Moggabloggi er orðin eins og götuumferð á Evróvisjón kvöldi. Ég veitti því athygli að eftir u.þ.b. 30 atkvæði breyttust hlutföllin nánast ekkert. Svo nenni ég ekki að hanga lengi yfir hlutunum! Vil alltaf leita á nýjar lendur, koma sem víðast við og fjalla um sem flest! Angra sem flesta af þeim dreggjum frjálshyggjunnar, sem enn hanga hér inni í skjóli leiðtogans mikla!

Björn Birgisson, 20.3.2011 kl. 22:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband