23.3.2011 | 13:23
Fimmta sætið krefst gullverðlaunanna
"Í þessu sambandi skal bent á að kærandi var fimmti í röð í hæfnismati eftir tvær umferðir viðtala við umsækjendur."
Ráðning skrifstofustjóra á nýrri skrifstofu stjórnsýslu- og samfélagsþróunar í forsætisráðuneytinu.
Flottur titill!
Hverjir voru númer tvö, þrjú og fjögur? Getur það fólk ekki kært þetta líka? Vegna jafnréttismála eða bara einhvers annars?
Er ekki allt er kært í dag. Meira að segja heilu kosningarnar!
Mér er alveg ómögulegt að meta hvort Kærunefnd jafnréttismála eða matshópur ráðuneytisins hefur unnið betra starf.
Eitthvað er orðið öfugsnúið þegar sú sem skipar fimmta sætið er farin að krefjast toppsætisins í baráttunni.
Aðkoma Jóhönnu að málinu virðist eingöngu fólgin í að treysta matshópnum.
En þetta er nú pólitík. Þá þykir bara fínt að segja ekki endilega allan sannleikann!
Hvar er kærandinn Anna Kristín í pólitíkinni?
Segir faglega staðið að málum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Björn Birgisson
Færsluflokkar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fyrst þú vilt skoða allt með pólitískum gleraugum þá svarar eftirfarandi spurningu þinni:
"Anna Kristín Ólafsdóttir, sem sótti um en fékk ekki starf skrifstofustjóra í forsætisráðumeytinu, er kunn fyrir störf sín innan Kvennalistans og síðar Samfylkingarinnar. Hún var lengi vel aðstoðarkona Ingbjargar Sólrúnar Gísladóttur þegar sú síðarnefnda var borgarstjóri og var líka aðstoðarkona Þórunnar Sveinbjarnardóttur þegar Þórunn var umhverfisráðherra."
http://eyjan.is/2011/03/23/kaerandinn-var-adstodarkona-ingibjargar-og-thorunnar/
Það eru því meiri líkur en minni að hún sé ekki í sjálfstæðisflokknum ef þú varst að velta því fyrir þér. Sennilega er frekar um að ræða innanhúsmál innan Samfylkingarinnar.
Björn Kristinsson (IP-tala skráð) 23.3.2011 kl. 13:35
Björn Kristinsson, greinilega hjálpaði pólitíkin henni ekki í umsókninni. Er það nú orðið gagnrýnivert? En ég sé fyrir mér upphrópanir þeirra sem núna hrópa úlfur, úlfur, hefði hún verið ráðin; -Samfylkingar kona ráðin þrátt fyrir að vera einungis fimmti hæfasti umsækjandinn! -
Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.3.2011 kl. 14:03
Nákvæmlega!
Björn Birgisson, 23.3.2011 kl. 15:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.