Róbert Ragnarsson nýr bæjarstjóri í Grindavík

Á bæjarstjórnarfundi í gær samþykkti bæjarstjórn Grindavíkur samhljóða að ráða Róbert Ragnarsson sem bæjarstjóra í Grindavík til næstu fjögurra ára.

"Ráðningarsamningurinn er mjög hagstæður fyrir bæjarfélagið og hefur verið komið til móts við þá gagnrýni er kom fram gagnvart ráðningarsamningum bæjarstjóra á síðasta kjörtímabili. Róbert mun mæta til starfa miðvikudaginn 4. ágúst.
Alls sóttu 55 um starf bæjarstjóra í Grindavík en 5 drógu umsókn sína til baka þegar ljóst var að nöfn umsækjenda yrðu birt. Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu. Fyrirtækið valdi úr þeim hópi fimm hæfustu einstaklingana. Þegar ljóst var hvaða fimm einstaklingar kæmu til greina fundaði bæjarstjórn og voru bæjarstjóraefnin boðuð í viðtöl til Grindavíkur. Aðili frá Capacent stýrði viðtölunum en bæjarráð sat viðtölin og tók þátt í þeim. Þegar öllum viðtölum var lokið hittist bæjarstjórn aftur og fór yfir umsækjendur. Í framhaldinu voru viðræður teknar upp við Róbert og var mjög ánægjulegt að samkomulag náðist fljótt um ráðningu hans.
Meirihluti og minnihluti í bæjarstjórn vann vel saman í þessu ferli og það er fagnaðarefni að ráðning bæjarstjóra var samþykkt samhljóða í dag.
Bæjarstjórn Grindavíkur vill þakka öllum umsækjendum fyrir áhugann sem þeir sýndu starfinu. Grindvíkingum óskum við til hamingju með nýjan bæjarstjóra og bjóðum Róbert og fjölskyldu hans velkomna til Grindavíkur.Róbert Ragnarsson er 34 ára gamall stjórnmálafræðingur, kvæntur Valgerði Ágústsdóttur og eiga þau 3 syni. Hann hefur undanfarin 4 ár verið bæjarstjóri í Vogum, en áður var hann verkefnisstjóri í félagsmálaráðuneytinu. Róbert er að koma aftur til Grindavíkur eftir 10 ára fjarveru, en hann var ferðamála- og markaðsfulltrúi Grindavíkurbæjar um aldamótin." Tekið af grindavik.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband