Nýtt embætti umboðsmanns skuldlausra?

"Sigurður Líndal lagaprófessor telur að auglýsa þurfi stöðu umboðsmanns skuldara að nýju."

Þá auglýsir Árni Páll bara stöðuna aftur og fær fullt af fínum umsóknum frá fólki úr öllum flokkum og velur svo einhvern Samfylkingarmann í starfið sem ekki er kunningi hans og ekki með allt niður um sig í fjármálunum. Málið þar með leyst. Smá væl í Mogganum og á blogginu í tvo daga og svo verður allt gleymt.

Í leiðinni mætti hann gjarnan auglýsa eftir umboðsmanni skuldlausra, en sá hópur virðist alveg hafa gleymst í allri umræðunni um skuldarana. Þetta er jú fólkið sem alltaf þarf að borga fyrir allt bullið með sköttunum sínum.

Þarf það ekki umboðsmann líka?

Þurfa ekki allir að hafa einhvers konar umboðsmann?


mbl.is Telur að auglýsa þurfi að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Gunnarsson

Umboðsmaður skuldara, umboðsmaður skuldlausra, umboðsmaður útrásarvíkinga,umboðsmaður landsbyggðafólks og lámark 50 manna skrifstofulið á hvern umboðsmann og allir ánægðir.

Magnús Gunnarsson, 4.8.2010 kl. 16:39

2 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Sigurður var nú ekkert harður á því að það þyrfti að auglýsa aftur í stöðuna. En nú er góður aðili sem gjörþekkir málin kominn í það, og  það er gott mál, hins vegar væri ábyggilega ekki vanþörf á að fá umboðsmann skuldlausra og eða umboðsmann ´lífeyrisþega, ekki væri vanþörf á því áður en búið verður að stela öllu af þeym.!!!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 4.8.2010 kl. 16:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Björn Birgisson

Höfundur

Björn Birgisson
Björn Birgisson

Er Ísfirðingur, búsettur í Grindavík síðan 1975, óflokksbundinn alla tíð, en áhugasamur um þjóðmál, smærri sem stærri. Afrekaskráin mín í lífinu er vel varðveitt leyndarmál. Er þó tvöfaldur einherji, þrátt fyrir 18 í forgjöf! Ef mikið liggur við er síminn minn 692-8060.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ÞKGR
  • Siðlausi Mogginn (2)
  • Kastljós (2)
  • Lýðskrum (2)
  • Guð2

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband